Fræðsla — Innihaldslýsing
Fræðslumolar | Næring vinnuhunda
Innihald Innihaldslýsing Innihaldslýsingar Næring Næringargildi Vinnuhundar
Næring vinnuhunda Vinnuhundar af ýmsu tagi, svo sem leitarhundar, lögregluhundar, fíkniefnahundar, veiðihundar, sleðahundar, fjárhundar og hundar sem fara oft út að hlaupa langar leiðir með umönnunaraðila, til dæmis í hjólaferðir, eru ekki stór hluti af hundaflórunni á Íslandi. Þrátt fyrir að þessir hundar séu ekki margir, þó þeim hafi fjölgað verulega undanfarin misseri, þá er mikilvægt að muna að næringarþarfir þessara hunda eru allt aðrar en venjulegra heimilishunda, hið minnsta þegar þeir eru í sem mestri vinnu. Í hverju liggur munurinn? Venjulegur heimilishundur, sem fer út að ganga 1-3 sinnum á dag, braggast oftast best á fóðri sem er 20-35%...
Fræðslumolar | Próteinmagn í fóðri
Fóður Fóðurbreytingar Fræðsla Fræðslusetur Hundar Innihald Innihaldslýsing Næring Næringargildi Próteinmagn Vinnuhundar
Próteinmagn í fóðri Þegar kemur að próteinhlutfalli í fóðri þá er mikilvægt að muna að það er mismunandi á milli hundategunda hvernig fóðrið ætti að vera samansett. Sleðahundur er til dæmis með töluvert aðra næringarþörf en Russian Toy sem er svo með nokkuð ólíka næringarþörf samanborið við Labrador; næring hunda ætti að taka mið af tegundinni og lífsstíl þeirra. Því miður þá hefur ofuráhersla á próteinneyslu á meðal fólks smitast yfir í hvernig eigendur sjá fyrir sér að besta fóðrunin sé fyrir hunda – yfirfærsla sem að sjálfsögðu á ekki rétt á sér. Jú auðvitað eru hundar alætur eins og...
Fræðslumolar | Maís gerir fóðrið okkar næringarríkara
Fræðsla Fræðslusetur Innihald Innihaldslýsing Innihaldslýsingar Næring Næringargildi
Fræðslumolar | „Afgangar“ í gæludýrafóðri?
Afgangar Hliðarafurðir Innihald Innihaldslýsing Innihaldslýsingar Mjöl Næring Næringargildi
„Afgangar“ í gæludýrafóðri? Gæludýraeigendur heyra oftar og oftar að „afgangar“ (hliðarafurðir, e. by-products) frá framleiðslu fóðurs eða matar séu notaðir til þess að framleiða gæludýrafóður. Eðlilega hrökkva eigendur gæludýra upp við slíkar fréttir enda fæstir sem sætta sig við að dýrin sín fái eitthvað sem kannski er ekki nógu gott. Þarna gætir þó ákveðins misskilnings enda eru þessir „afgangar“ alls engir afgangar. Réttara væri að tala um hliðarafurðir fóður- og matvælaframleiðslu. Og vel að merkja, þessar hliðarafurðir eru notaðar í stórauknu magni í matvælaframleiðslu í verðmætar afurðir með mikla lífvirkni (prótein, kolvetni, fita, vítamín og steinefni eru dæmi um efni...
Fræðslumolar | Innihaldslýsing eða næringargildi í hunda- og kattafóðri
Afgangar Fóður Fóðurbreytingar Hliðarafurðir Hundar Innihald Innihaldslýsing Innihaldslýsingar Mjöl Næring Næringargildi
Innihaldslýsing eða næringargildi í hunda- og kattafóðri; eru "uppfyllingarefni" í Royal Canin fóðrinu? Eitt af því sem er mikilvægt að muna þegar kemur að innihaldslýsingu er að hún segir oft á tíðum minna en margur heldur um nákvæmt næringargildi vörunnar. Þegar kemur að næringu hunda og katta og reyndar flestra annarra tegunda, þar á meðal manna, þá er það næringargildið sem skiptir öllu máli. Tökum dæmi - hundafóðurframleiðandi gefur innihaldslýsingu þar sem eftirfarandi kemur fram: Chicken, Corn Meal, Ground Whole Grain Sorghum, Chicken By-Product Meal (Natural source of Chondroitin Sulfate and Glucosamine), Ground Whole Grain Barley, Dried Beet Pulp, Chicken...