Stórhundadagar voru haldnir helgina 15.-16. febrúar í Garðheimum. Eva okkar stóð vaktina á laugardeginum og Theodóra dýrahjúkrunarfræðingur á sunnudeginum en þær tóku á móti gestum spjall og ráðgjöf. Gestir gátu fengið prufur af Start of Life línunni frá Royal Canin. Fjölmennt var á svæðinu, fallegir hundar og frábær samtöl!
Viðburðir
Ótrúlega skemmtilegir viðburðir þessir dagar sem haldnir eru í Garðheimum og hlökkum við til að sjá sem flesta á næstu viðburðum. Áherslan á básnum okkar var Start of Life línan frá Royal Canin en hún tryggir hvolpunum okkar besta mögulega upphaf lífsins og er sérsniðin að þörfum hvolpanna okkar upp allt vaxtaskeið þeirra.