Maxi Starter

Fóður fyrir hvolpafullar og mjólkandi tíkur af stórhundategund og hvolpana þeirra

Fóður sem tekur við af HT42d fóðrinu. 

Næringarinnihald

Heildstætt fóður ætlað tíkum og hvolpum frá og með 43. degi meðgöngu, fæðingu, á meðan hvolparnir eru á spena og sem fyrsta fóður hvolpa til 2ja mánaða aldurs. Fóðrið er orkuríkt til að mæta þörfum hjá hvolpafullum tíkum og hjá tíkum með hvolpa á spena enda um að ræða krefjandi tímabil fyrir tíkina.

Heilbrigð byrjun

Sérstaklega samansett af næringarþáttum sem eru til staðar í móðurmjólkinni, einkum til að styrkja meltingu hvolpa og byggja upp náttúrulega vörn þeirra (þar á meðal með FOS og MOS góðgerlafæðu).

Bragðgott og auðvelt að bleyta upp

Bragðgott og auðvelt að bleyta upp til þess að auka lyst hjá tíkinni og til þess að auðvelda breytinguna hjá hvolpunum frá móðurmjólk yfir í fasta fæðu - auðvelt að bleyta upp! 

ATH: Ef einungis 1-2 hvolpar eru væntanlegir getur Starterinn verið of orkuríkur fyrir tíkina og valdið óþarfa þyngdaraukningu sem er óæskilegt. Því er, undir þeim kringumstæðum, mælt með að færa tíkina yfir á Puppy á 43. degi meðgöngunnar (einnig er hægt að halda áfram á HT42d) sem er orkuminna fóður en Starter en svo aftur yfir á Starter þegar hvolpar eru fæddir enda mikilvægt að tíkin fái næga orku til að gefa á meðan á krefjandi spenagjöf stendur.

Næringargildi

Prótein: 30.0% - Fita: 22.0% - Trefjar: 1.9%.