Dagvistun - Vika

Dagvistun fyrir hunda sem vantar fjölbreyttari dagsskrá, eiga erfitt með einveru eða vantar aukinn félagsskap.

Opnunartími vistunar er frá 8:45-16:45 mánudaga til fimmtudaga, 8:45-15:45 föstudaga. 

Í dagvistun er innifalið: 

  • allur aðbúnaður
  • almenn umönnun
  • leikur og knús
  • göngutúr
  • samvera
  • hvíld

Kröfur um að hundur:

  • sé vanur búri fyrir hvíld
  • geti umgengist aðra hunda og fólk
  • sé skráður hjá sveitarfélagi
  • sé með uppfærða bólusetningu og framvísi bólusetningarskírteini fyrsta daginn
  • sé almennt heilsuhraustur
  • lágmarksaldur er 6 mánaða

Hvað þarf að taka með?

  • hundinn sjálfan
  • hálsól/beisli og hefðbundinn taum (ekki útdraganlegan)

Ath. tíkur á lóðaríi skulu vera heima.
Skráningin gildir fyrir skráðan hund, ekki er heimilt að skipta um hund á tímabilinu.

Dýrheimar bera ekki ábyrgð á almennum veikindum dýrs eða bráðatilfellum af óviðraáðanlegum aðstæðum. Ef bráðatilvik kemur upp er Dýrheimum heimilt að leita strax til næsta dýralæknis á kostnað eiganda.

Umsjónaraðili hunda: Tinna Stefánsdóttir

Customer Reviews

Based on 2 reviews
100%
(2)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
R
Rannveig Gauja
Dagvistun

Get 100% mælt með dagvistuninni hjá Dýrheimum. Emma var svo kát, kom vel hreyfð og sátt heim, búin að brasa og leika við aðra hunda yfir daginn. Tinna er einstök og tekur hlýlega á móti hundunum og Emma elskar hana!

E
Eva Björk Ernudóttir
Dagvistun

Fjóla var alsæl með Tinnu sinni í þessa viku sem hún var í dagvistun. Fékk göngutúra og allskyns afþreyingu og fullt af Tinnu knúsi 🥰❤️ Mæli mjög mikið með dagvistuninni hjá Dyrheimum ❤️