Dýrheimar er fjölskyldufyrirtæki sem stofnað var árið 1995 til að sjá um dreifingu á vörumerkinu Royal Canin og er nú orðið að samfélagi Dýrheima. Þar má m.a. finna verslun, hundaskóla, heilsutékk og kaffihús þar sem gæludýraunnendur geta sest niður og slakað á, með dýrin með sér eða innan um þau. Það má vissulega segja að fyrirtækið blómstri með samheldinn hóp sérfræðinga innanhúss.
Fræðslan var mjög áhugaverð og gagnleg og lærðum við margt. Það var gott að fá leiðréttingu á ýmsum mýtum sem hafa verið að ganga.
Hún var soldið hvolpamiðuð, en við kattaræktendurnir lærðum margt.
Var virkilega vönduð og skemmtileg fræðsla hjá Theodóru 💖 þakklát fyrir hvað Dýrheimar eru virkir fyrir ræktendur.
Ræktendafræðslan var mjög góð og rosalega fræðandi. Stuttu seinna var ég viðstödd tvö got og hjálpaði fræðslan mér mikið 🥰 Ég mæli eindregið með ❤️
Hundurinn minn er mjög erfiður með klóaklippingar, en þjónustan sem ég fékk var algjörlega til fyrirmyndar. Mjög snögglega afgreitt mál og þægilegt andrúmsloft sem einfaldaði málið. Kem hiklaust aftur með hann.
Frábært hvolpanámskeið. Hundaþjálfarinn dásamlegur og allra vilja gerður að aðstoða og svara öllum spurningum. Við bíðum spennt eftir næsta tíma :)
Mjög fínn tími. Fékk aðstoð og leiðbeiningar um það sem ég þarf að vinna með hjá hundinum mínum. Góð þjónusta, mæli með.
Takk fyrir fræðandi fyrirlestur sem var virkilega vel fram settur, takk fyrir mig💖
Theodóra var með mjög fróðlegt erindi um næringu tíka og læða á meðgöngu og umönnunartíma ásamt því að fara yfir næringu hvolpa og kettlinga.
Theodóra er mjög fróð og full af eldmóði og kom með fullt af öðrum góðum ráðum til okkar ræktanda.
Og svo var kakan sem Jóhanna bakaði alveg sérstaklega góð.
Hárinn bókstaflega runnu af. Hefði ekki trúað fyrr en é prufaði.
Ég fór í sýnendaþjálfun til hennar Rannveigar og ég mæli 100% með þessa tíma!
Rannveig Gauja var tilbúin að hlusta á allar mínar vangaveltur og aðstoðaði mig með allt sem að ég hafði átt í erfiðileikum með.
Hún gaf mér góða punkta til þess að ég gæti lesið reglulega yfir og einnig til þess að muna allt það sem að ég var að læra.
Nærvera hennar er góð og bæði ég og hundarnir mínir fórum örugg í keppnishringinn sem skilaði okkar frábærum árangri!
Takk innilega fyrir mig!
Hef litla sem enga fyrri reynslu af hundanámskeiðum þannig að samanburður er vandasamur. Að mínu viti var þetta hvolpanámskeið mjög gott, aðstaðan góð og leiðbeiningar fagmannlegar. Mér fannst Míó hafa mjög gott af þessari reynslu og ég vona að ég hafi lært jafn mikið og hann.
Lærðum helling, frábært námskeið og við mælum 100% með því.
Froða sem gefur feldinum fyllingu og skilur ekki eftir neina áferð á feldinum. Prufaði þetta á fæturnar á tíkinni minni og er mjög ánægð með þessa vöru!
Frábært gott fyrir hund og eiganda
Frábært námskeið hjá Albert fyrir minn hvolp