Hvolpanámskeið - 15:30-17:00

Á hvolpanámskeiði læra hvolpar augnsamband og samstarfsvilja við stjórnanda.

Notuð er jákvæð styrking, rödd og nammibitar/dót.

Þær æfingar sem farið er yfir á námskeiðinu eru:

  • ganga í taum
  • sitja
  • liggja
  • standa
  • innkall
  • slökun
  • nei skipun
  • gjörðu svo vel/eða frí

Farið er í umhverfisþjálfun og hvolpar læra að vinna saman í hóp og við ólíkar aðstæður og eiga að geta gert allar æfingar á ólíkum svæðum. Námskeiðið hentar öllum hvolpum frá 3 mánaða aldri.

Námskeiðið gefur rétt á afslætti á hundaleyfisgjöldum.

*ATH* sjá dagsetningar í bókun. 

Fjöldi skipta: 8 skipti - 1 tími er bóklegur án hunds.
Tímalengd: 90 mín 
Staðsetning: Víkurhvarf 5, 203 Kópavogur

Þjálfari: Albert Steingrímsson

*Hvolpa- og hlýðninámskeiðin okkar eru sérstaklega haldin úti til þess að hundarnir þjálfist í raunaðstæðum óháð árstíma en ekki á vernduðu innisvæði, slíkt hefur reynst betur þegar hvolparnir halda svo út í lífið.

Customer Reviews

Based on 30 reviews
100%
(30)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
J
J.I.K.
Frábært námskeið!

Svo mikilvægt að fara með litlu krýlin á námskeið og þú finnur ekki betra námskeið en þetta.

G
G.R.Ó.
hvolpanámskeið

frábært námskeið kennari mikill fagmaður

Þ
Þ.Þ.Þ.
Frábært námskeið

Ég hef samanburð og þetta námskeið fær A+ hjá okkur. Aðstaðan hjá Dýrheimum er til fyrirmyndar og Albert veit alveg hvað hann er að gera - mjög góður kennari.

S
S.H.J.

Mjög gott og skemmtilegt námskeið

S
S.O.
Mjög gott námskeið

Þetta var allt til fyrirmyndar og Albert frábær kennari