Allar pantanir eru afgreiddar úr vöruhúsi Dýrheima með eftirfarandi hætti:
Pantanir á höfuðborgarsvæðinu eru keyrðar út á opnunartíma milli kl. 9 - 16.
Íslandspóstur eða Flytjandi sjá um að dreifa vörum út á land sem keyptar eru á www.dyrheimar.is og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar þessara flutningsfyrirtækja um afhendingu vörunnar.
Dýrheimar bera samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir skemmdum frá því að að hún er send frá Dýrheimum til móttakanda er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.
Öll verð í vefverslun eru með 24% virðisaukaskatti (VSK).
Vara sem versluð er á www.dyrheimar.is er keyrð heim í póstnúmer 101-113, 200-203, 210-212, 220-221, 225 og 270 en send á næsta pósthús í önnur póstnúmer. Sending vöru heim er kaupanda að kostnaðarlausu á höfuðborgarsvæðinu. Annars gildir sendingarkostnaður sem greiðist í lok pöntunar í afhendingarvali.