Algengar spurningar

Það er algengt að hvolpar missi matarlyst fyrstu dagana á nýju heimili. Miklar breytingar eins og flutningur getur dregið úr matarlyst svo það er gott að gefa hvolpinum ró og næði í kringum matmálstíma, tryggja góðan svefn ásamt því að hafa jafnvel blautmat í boði yfir þurrfóðrið.

Best er fyrir hvolpa að fá fóðrið sitt og blautfóður svo það er ráðlagt að nota t.d. sleikimottur eða leikföng sem hægt er að fylla með matnum þeirra. Einnig er hægt að frysta kaðla og önnur leikföng til þess að uppfylla nagþörf. Lítil snúin nagbein gætu einnig hentað en mikilvægt er að halda slíku nagi í lágmarki upp á að draga úr álagi á meltingarveginn.

Við ráðleggjum amk. 8 vikna. Yngri ungviði gætu átt erfiðara með að viðhalda hitastigi sínu. Gott er að baða hvolpinn reglulega til að venja hann við. Gott er að vatnsblanda sjampóið.

Hvolpar ættu að borða þrjár máltíðir á dag frá 2-5 mánaða þar sem þeir eru viðkvæmari fyrir lengri föstutímum á þessum aldri. Eftir það er ráðlagt að gefa tvær máltíðir á dag til þess að minnka álag á meltingarveg í hverri máltíð.