Vöruskil

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að sölureikningi sé framvísað sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru er gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan er í formi rafræns gjafabréfs sem notuð er við kaup á www.dyrheimar.is og gildir í tvö ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiða Dýrheimar allan sendingarkostnað sem um ræðir eða endurgreiðir kaupanda gerist þess þörf. Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup.

Skiptiréttur (smakkábyrgð)

Smakkábyrgð er á öllum vörum upp að 7,5kg. Vöru er skipt út fyrir aðra vöru í vörulínunni, líki dýrinu ekki varan. Ef varan fæst ekki í stærð undir 7,5kg nær skiptirétturinn einnig til þeirra vara.