VD Dog Renal Liquid 3x0,2L

Fæst einungis hjá dýralæknum! 

Sérstaklega útbúið til að styðja við nýrnastarfsemi í tilfellum þar sem skert nýrnastarfsemi er til staðar.


Aðlagað próteinhlutfall

Aðlagað hlutfall próteins og takmarkað magn fosfórs til að fyrirbyggja ofsöfnun fosfórs í nýrum.

Heildstæð næring

Næring í vökvaformi sem uppfyllir næringarlega þörf hunda og katta sem þurfa á aðstoð að halda við inntöku hennar.

Andoxunarefni

Samverkandi andoxunarefni (þ.m.t. mikið magn E-vítamína, C-vítamína, tárín og lútíni) hjálpa til við að hlutleysa sindurefni og minnka þar með skaðsemi þeirra.

Einfalt í notkun

Fljótandi formúla með aðlagaðri seigju til að auðvelda notkun, sérstaklega fyrir sjúklinga með sondu. Hentar hvaða sondustærð sem er.

Ráðlagt í eftirfarandi tilfellum:

  • Bráð nýrnabilum (AKI)

  • Azotemísk nýrnabilun (IRIS seinna stig 2 - stig 4)

  • Krónísk nýrnabilun með próteinmissi gegnum þvag (IRIS stig 1-4)

  • Lifrarheilakvilla

Ekki ráðlagt í eftirfarandi tilfellum:

  • Í uppvexti, á meðgöngu og á mjólkurgjafartímabili

  • Brisbólgu eða þar sem sjúklingur hefur sögu um brisbólgu

  • Blóðfituhækkun

Næringargildi í hverjum 100ml

Prótein: 5 g - Fita: 8 g - Trefjar: 0 g - Raki: 79.2 g - Kalk: 0.16 g - Fosfór: 0.11 g – Potassíum: 0.17 g - Sódíum:: 0.13 g - Nauðsynlegar fitusýrur:: 2.2 g – EPA & DHA: 0.17 g - Orka: 150 kcal.