Fóðrið inniheldur sambland andoxunarefna sem vinna að því að hlutleysa sindurefni og minnka þar með skaðsemi þeirra á líkamann.
Fóðrið hjálpar til við að draga úr vægum ofnæmiseinkennum í meltingarvegi með auðmeltanlegum formeltum próteinum (LIP), sérvöldum trefjum (m.a. psyllium) og góðgerlafæðu (FOS).
Lögun fóðurkúlnanna tekur tillit til kjálkastærðar og er með þeim hætti að hún hvetur hundinn til þess að tyggja en það minnkar hættuna á tannsteinsmyndun.
Bragðgott og höfðar jafnvel til matvöndustu hunda en margir hundar af smáhundakyni glíma við lystarleysi.
Fóðrið inniheldur bæði glúkósamín og kondróítin en bæði þessi efni leika lykil hlutverk í heilbrigðum liðum en liðavandamál eru vel þekkt á meðal hunda af miðlungsstærð. Auk þess er í fóðrinu ómega-3 fitusýrur sem draga úr bólgum sem oft myndast í liðum.
Eldri smáhundar sem eru 1-10 kg.
Prótein: 30.0% - Trefjar: 1.8% - Fita: 22.0%.