Tough Ropey Rugby Tugger

Sterkbyggt kastleikfang!

Skemmtilegur rúgbíbolti með reipi í gegn fyrir alvöru tætara. Unnið úr endingargóðri blöndu af náttúrulegu gúmmí og endurunnum kaffikorgi, sem skapar einstaka áferð sem hundar elska að naga. Efnið er stinnt en sveigjanlegt, þannig að tennurnar geta sökkt sér í það án þess að gata, sem minnkar hættuna á að leikfangið rifni, á sama tíma og það uppfyllir náttúrulega nagþörf hundsins.

  • Gert úr hágæða náttúrulegu gúmmíi með endurunnu kaffikorgi
  • Einstök og nagþolin áferð
  • Stærð 26 x 9 cm