Maine Coon Kitten

Þurrfóður fyrir Maine Coon kettlinga

Heildstætt þurrfóður fyrir Maine coon kettlinga til 15 mánaða aldurs.

Tannheilsa

Fóðurkúlurnar eru stórar og ætlaðar fyrir stóra kjálka Maine Coon kettlinga. Þetta hvetur kettlingana til að tyggja fóðrið en slíkt minnkar líkur á tannsteinsmyndun og stuðlar þannig að tannheilsu.

Heilbrigð þarmaflóra

Fóðrið inniheldur auðmeltanleg prótein (LIP) sem minnka álag á meltingarveginn. Sömuleiðis inniheldur fóðrið góðgerlafæðuna MOS & FOS sem styrkir örveruflóruna en álag á meltingarveg er stór áskorun á meðal kettlinga.

Heilbrigður vöxtur beina og liða

Inniheldur aðlagað magn af próteini, vítamínum og steinefnum, meðal annars af kalki og fosfór, sem stuðlar að heilbrigðum vexti beina og liða. Sömuleiðis inniheldur fóðrið nákvæma blöndu af fjölómettuðum ómega-3 fitusýrum (m.a. EPA og DHA) sem smyrja liði og draga úr liðverkjum.

Stuðningur við liði

Fóðrið inniheldur glúkósamín og kondróítin en niðurstöður rannsókna á báðum þessum efnum gefa til kynna að þau séu liðuppbyggjandi og viðhaldi þar með heilbrigðum liðamótum.

Næringargildi

Prótein: 36% - Trefjar: 2.9% - Fita: 23% - Kalk 1.32% - Fosfór: 1.15%.