Hvolpanámskeið - 17:00-18:30

Á hvolpanámskeiði læra hvolpar augnsamband og samstarfsvilja við stjórnanda.

Notuð er jákvæð styrking, rödd og nammibitar/dót.

Þær æfingar sem farið er yfir á námskeiðinu eru:

  • ganga í taum
  • sitja
  • liggja
  • standa
  • innkall
  • slökun
  • nei skipun
  • gjörðu svo vel/eða frí

Farið er í umhverfisþjálfun og hvolpar læra að vinna saman í hóp og við ólíkar aðstæður og eiga að geta gert allar æfingar á ólíkum svæðum. Námskeiðið hentar öllum hvolpum frá 3 mánaða aldri.

Námskeiðið gefur rétt á afslætti á hundaleyfisgjöldum.

*ATH* sjá dagsetningar í bókun. 

Fjöldi skipta: 8 skipti - 1 tími er bóklegur án hunds.
Tímalengd: 90 mín 
Staðsetning: Víkurhvarf 5, 203 Kópavogur

Þjálfari: Albert Steingrímsson

*Hvolpa- og hlýðninámskeiðin okkar eru sérstaklega haldin úti til þess að hundarnir þjálfist í raunaðstæðum óháð árstíma en ekki á vernduðu innisvæði, slíkt hefur reynst betur þegar hvolparnir halda svo út í lífið.

Afbókun á námskeið skal berast 5 dögum áður en námskeið hefst. 

Customer Reviews

Based on 11 reviews
82%
(9)
9%
(1)
9%
(1)
0%
(0)
0%
(0)
G
Gurrý Matt
5 stjörnur

Algjörlega frábært námskeið. Albert er hlýr, jákvæður og sérlega fagmannlegur. Námskeiðið er mjög fræðandi, krefjandi og skemmtilegt. Frábær fyrsta æfingin sem við lærðum sem er að kenna hundinum slökun! Sú æfing er notuð daglega á okkar heimili 🙏🏼 Mæli 100% með þessu hvolpanámskeiði! Kv, Gurrý og Theodór

H
Halldóra
Bara betra!

Ég er svo ánægð með að hafa valið þetta hvolpanámskeið hjá Alberti, frábærir tímar og gott að hafa þá úti.

B
B.Þ.K.
Frábært námskeið

Frábært námskeið og kennari.

A
Arnór Eyþórsson
Afbragðsnámskeið

Must námskeið fyrir hvolpaeigendur.

G
G.Þ.B.
Frábært námskeið

Albert er frábær kennari og aðferðirnar hans við að kenna okkur fólkinu virka vel (þetta snýst jú meira um að þjálfa okkur í að vera betri stjórnendur fyrir hundana okkar). Mæli með þessu námskeiði hjá Albert við alla sem eru að fá sér hvolp. Höfum áður farið á hvolpanámskeið fyrir nokkrum árum annars staðar en erum að fá svo mikið meira út úr þessu námskeiði.