VHN Cat Sensitivity Control 12x85gr - Blautfóður

Fæst einungis hjá dýralæknum! 

Sjúkrafóður fyrir ketti með ofnæmi eða með viðkvæma meltingu (Adverse Food Reactions – AFR).

Prótein

Aðeins einn auðmeltanlegur próteingjafi sem hjálpar til við að draga úr líkum á ofnæmis og/eða meltingarviðbrögðum hjá köttum.

Húðvarnir

Formúlan styður náttúrulegar varnir húðarinnar fyrir ákjósanlega heilsu.

EPA/DHA fitusýrur

Ríkt af omega-3 fitusýrum sem hjálpa til við að viðhalda heilbrigðri húð og stuðla að eðlilegri starfsemi meltingarkerfisins.

Meltingarheilsa

Sérvalin næringarefni styðja við jafnvægi í meltingunni og geta hjálpað köttum með langvarandi niðurgang eða meltingaróþægindi.

Ráðlagt í eftirfarandi tilfellum:

Fóðrið er meðal annars ráðlagt við fæðuóþoli (AFR), atópískri húðbólgu (CAD), langvinnum niðurgangi og krónískum kláða.

Næringargildi

Trefjar: 0,9%. Fita: 6%. Raki: 79,4%. Prótein: 7%.