For orders over $ 100
Free return within 5 days
100% Money-Back guarantee
Dýrheimar áskilja sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar úr vöruhúsi næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift með Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Íslandspóstur er með sitt eigið afhendingar- og heimkeyrsluverklag sem finna má á https://www.postur.is/. Dýraland ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Dýralandi til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Um vörukaup í heildsölunni gilda aðrar reglur - vinsamlegast smelltu á heildsölusíðuna.
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk. en sendingarkostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti beint heim að dyrum eða á pósthús dreifingarsvæðis Íslandspósts. Póstburðargjald er skv. gjaldskrá Íslandspóst.
Nánari upplýsingar um sendingarkostnað:
Vegna COVID-19 - snertilaus afhending
Vegna samkomutakmarkana og vegna þess að fólk er beðið um að vera ekki á ferð að óþörfu verður frí heimsending* hvert á land sem er frá og með 19. mars þar til upplýsingar um annað verða settar hér inn. Starfsmenn munu gæta þess í hvívetna að fara í einu og öllu að ráðleggingum stjórnvalda.
Ef pantað er fyrir kl. 13 virka daga er varan keyrð samdægurs heim á höfuðborgarsvæðinu og á dreifingaraðila vegna pantana sem berast frá landsbyggðinni. Reikna má með útkeyrslu á bilinu kl. 13-17 alla virka daga.
*Möguleikar á heimsendingu eru mismunandi milli póstnúmera og ef heimsending er ekki í boði er í flestum tilvikum miðað við að sending sé sótt á næsta pósthús.
Að skipta og skila vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup.
Skiptiréttur (smakkábyrgð)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga.
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Samfélagið er staður þar sem hunda- og kattaeigendur geta sótt þær vörur og þjónustu sem þeir þurfa til að annast dýrið sitt með öruggum hætti, tryggt velferð þeirra og heilsu, bæði andlega og líkamlega.
Samfélagið stendur fyrir velferð dýra og samvinnu við hunda- og kattaeigendur. Til samfélagsins er ávallt hægt að leita varðandi heildarumönnun hunda og katta því þar er að finna þá fræðslu, þjónustu, vörur og félagsskap sem þarf til að annast dýrið sitt, gæta öryggis þess eða láta gott af sér leiða í þágu hunda og katta.
Samfélagið sér til þess að þarfir hunda og katta sem og eigenda þeirra séu uppfylltar með framúrskarandi vörum og sérsniðinni þjónustu sem hentar hverjum og einum með ólíka reynslu og þarfir. Samfélagið er sýnilegt, sveigjanlegt, ávallt til staðar og aðgengilegt á þann máta sem hentar viðskiptavinum best. Samfélagið les í þarfir hunda- og kattaeigenda og finnur tilheyrandi lausnir.
You are in advanced mode.
You can turn it off in left sidebar. To use advanced options, you will need to enter your own Google Maps API Key.
Get Google API KeyDÝRHEIMAR SF.
ÖGURHVARF 8
203 KÓPAVOGUR
DÝRHEIMAR SF. - ALLUR RÉTTUR ÁSKILINN