Eyrnaskoðun

Eyrnaskoðun er sérhæfð skoðun þar sem dýralæknir metur heilbrigði eyrna og greinir möguleg vandamál. Skoðunin felur m.a. í sér mat á eyrnagangi og hljóðhimnu og hvort um sé að ræða eyrnabólgu, sýkingu, ofnæmi, sníkjudýr eða önnur vandamál.

Mælt er með eyrnaskoðun ef dýrið er með roða í eyrum, klórar sér í eyrum, hristir höfuð eða sýnir merki um óþægindi.