Á þessu námskeiði er farið yfir hvernig hundur og stjórnandi eigi að vinna saman til þess að ná sem bestum árangri í prófum.
Krafa er að viðkomandi teymi sé búið með hlýðni 1 og hlýðni 2 námskeið áður en skráð er á undirbúningsnámskeiðið.
Æfingar sem farið er yfir:
- Taumganga
- Laus við hæl
- Innkall
- Sitja og liggja í fjarlægð
- Sækja og skila
- Leggjast á göngu
- Standa á göngu
- Liggja í hóp (eigandi í hvarfi)
- Heilsa (Sýna tennur)
- Hopp yfir hindrun
- Sækja járnkefli
- Sækja trékefli
- Fjarlægðastjórnun (áframsending með standa)
Þetta námskeið er ætlað þeim sem stefna á eða stunda próf á vegum vinnuhundadeildar HRFÍ ásamt prófum fyrir björgunarhundasveitir.
Námskeiðinu fylgir töluverð heimavinna og reynir á samvinnu stjórnanda og hunds.
Þjálfari: Albert Steingrímsson
- Væntanlegt -