september 04, 2026 1 mínútur að lesa
Þann 29. ágúst sl. hélt Deild íslenska fjárhundsins frábæra deildarsýningu en Royal Canin var styrktaraðili sýningarinnar. Frábær mæting var og um 45 hundar voru skráðir og nutu dagsins úti í sólinni á Arnarstöðum í Flóa. Dómari var Þorbjörg Ásta Leifsdóttir.
Besti hundur sýningar: Íslands Dimmuborgar Hríma
Besti hundur sýningar af gagnstæðu kyni : Kolsholts Skrúður
Besta ungviði sýningar: Kolsholts Eirsól
Besti hvolpur sýningar: Gerplu Átta Þöll
Besti ungliði sýningar: Ístjarnar Rósa
Besti öldungur sýningar: Kolsholts Þengill
Nánar um úrslit sýningarinnar.