Afmælisveisla í Kattholti

september 15, 2026 1 mínútur að lesa

Þann 13. september sl. hélt Kattholt afmælisveislu í tilefni þess að Kattavinafélag Íslands varð 50 ára og Kattholt 35 ára! Viðburðurinn heppnaðist einstaklega vel og var mætingin framar vonum. Salurinn fylltist af kattaáhugafólki og á köflum myndaðist röð við innganginn vegna mikils áhuga. 

Andlitsmálning
Kisa sofandi
afmæliskökur

Veislan fór fram í sal Kattholts þar sem gestum var boðið upp á veitingar, fræðsluefni um ketti og andlitsmálun fyrir yngstu gestina. Einnig var Andrea Björk Hannesdóttir dýralæknir á staðnum og svaraði spurningum um heilsu, næringu og umhirðu katta. 

Lestu meira um viðburðinn hér.

Andrea dýralæknir í Kattholti

Dýrheimar óska Kattholti og Kattavinafélagi Íslands innilega til hamingju með þessi tímamót og vel heppnaðan viðburð. Jafnframt þökkum við fyrir það mikilvæga starf sem félagið hefur unnið í þágu katta og kattavelferðar í gegnum tíðina!