september 20, 2026 1 mínútur að lesa
19. og 20. september sl. fóru Smáhundadagar fram í Garðheimum! Á staðnum voru kynntar 14 frábærar smáhundategundir og fjölmargir gestir litu við til að heilsa upp á hundana og kynnast tegundunum betur.
Óli, sölustjóri Dýrheima, var á staðnum og tók vel á móti fjölmörgum hundaeigendum. Hann átti góð samtöl við gesti og veitti ráðgjöf og aðstoð við val á hundafóðri frá Royal Canin.



Við hjá Dýrheimum viljum þakka öllum sem mættu á svæðið kærlega fyrir frábæra helgi. Það er alltaf gaman að hitta bæði nýja og gamla viðskiptavini og fallegu hundana ykkar!