febrúar 07, 2024 1 mínútur að lesa
Mjóhundadeild HRFÍ endurnýjaði samstarfssamning sinn við Royal Canin á Íslandi nú á dögunum. Þökkum þeim fyrir gott samstarf undanfarin ár og hlökkum til næstu tveggja ára með deildinni sem sér um að standa vörð um ræktun mjóhundadeilda á Íslandi.
Mjóhundadeild HRFÍ var stofnuð 2007 og ber ábyrgð á varðveislu og ræktun mjóhundategunda á Íslandi í umboði stjórnar Hundaræktarfélags Íslands (HRFÍ). Deildin hefur einnig haldið ýmsa viðburði fyrir meðlimi deildarinnar á borð við sérsýningar og beituhlaupskeppnir. Á heimasíðu deildarinnar má finna ýmsan fróðleik um tegundirnar sem til eru á landinu - sjá hér.
Þurrfóður fyrir meðalstóra hunda eldri en 12 mánaða.
Fóðrið inniheldur öflug andoxunarefni og góðgerlafæði (MOS) sem styrkja ónæmiskerfið og efla náttúrulegar varnir líkamanns.
Auðmeltanleg hágæða prótein (LIP) og trefjar sem stuðla að bættri meltingu. Inniheldur góðgerlafæðuna MOS sem auk þess heldur þarmaflóru í góðu jafnvægi.
Inniheldur ómega-3 og ómega-6 fitusýrur sem styrkja ytri vörn húðarinnar og þannig stuðlar fóðrið að glansandi feldi og heilbrigðri húð.
Prótein: 25% - Trefjar: 1.3% - Fita: 14%.