febrúar 13, 2026 1 mínútur að lesa
Dýrheimar leggja mikla áherslu á mikilvægi heilsu og vellíðan allra katta og hunda. Við styðjum mikilvæg málefni sem hafa bein áhrif á líf dýranna og vinnum þannig að bættri líðan og velferð. Í vikunni fórum við með gjöf til Kattholts sem innihélt ýmsar vörur sem nýtast í daglegri umönnun kattanna sem þar dvelja. Í gjöfinni var fóður frá Royal Canin, Leucillin sáravökvi og Bio-Groom feldvörur.
Kattholt var stofnað af Kattavinafélagi Íslands árið 1976 til þess að sjá um heimilislausa ketti. Kattholt sinnir því mikilvæga starfi að veita heimilislausum köttum skjól, umönnun og umhyggju á meðan þeir bíða eftir nýjum eigendum. Hóflegt gjald er á ættleiðingu kattar, en gjaldið fer upp í almennan dýralæknakostnað sem vænta má í upphafi kattaeignar.
Kattahótel
Kattholt sinnir ekki einungis heimilislausum köttum heldur rekur einnig kattahótel í aðskilinni byggingu. Þar getur heimilisköttur vistast í lengri eða skemmri tíma á meðan eigendur eru að heiman.
Verslun
Kattholt er einnig með litla verslun í anddyrinu sínu, eins og sést á myndinni fyrir ofan. Þar má finna ýmislegt fyrir kattahald, meðal annars kattafóður frá Royal Canin en allur ágóði úr versluninni fer beint í utanumhald og umönnun kattanna sem þar búa.