"Áttuðum okkur ekki á því að þetta væri alvarlegt ástand" - Tannheilsa með Sunnevu dýralækni
febrúar 13, 2026
2 mínútur að lesa
Febrúar er 'Dental awareness month' og í tilefni þess má finna nýjan þátt hjá Hlaðvarpi Dýrheima!
Viðtal við sunnevu dýralækni
Í þættinum töluðu Theodóra dýrahjúkrunarfræðingur og Sunneva dýralæknir saman um tannheilsu dýra. Sunneva starfar í tanndeildinni á Dýraspítalanum í Garðabæ og hefur bætt við sig viðbótarnámi og námskeiðum í tannheilsu smádýra. Theodóra og Sunneva voru með spennandi spjall um allt frá tannburstun til einkenna tannsjúkdóma. Þær ræddu einnig um af hverju tannheilsa hjá dýrum skiptir svo miklu máli og mikilvægi reglulegrar tannumhirðu.
Sunneva dýralæknir að skoða tennur.
Tannheilsa dýra
Tannheilsa skiptir miklu máli fyrir vellíðan og heilbrigði dýrsins. Óheilbrigt munnhol getur haft margvíslegar afleiðingar á heilsu dýrsins. Algengt er að aðskilja tannheilbrigði við almennt heilbrigði, en það er mikilvægt að bregðast fljótt við ef dýrið sýnir merki um vandamál í tönnum og munnholi.
"Hann borðar alveg, er honum þá illt í tönnunum?"
Hundar og kettir sýna oft leynd merki um verki í tönnum sem erfitt getur verið að sjá. Hegðunarbreytingar gerast oft yfir langan tíma, sem gerir það erfiðara fyrir okkur að taka eftir því. Dæmi um hegðunarbreytingar geta til dæmis verið að dýrið getur hikað örlítið áður en það byrjar að borða.
Algengustu tannvandamál hunda eru tannholdsbólgur, sem koma til vegna tannsteins auk brotinna tanna, bitvandamála og tannslíðursbólgu. Algengustu tannvandamál katta eru hins vegar tannáta, þar sem 60-70% katta fá einhvern tímann tannátu. En einnig má sjá hefðbundinn tannsteinnn og tannholdsbólgu án frekari sjúkdóma, slíkt er auðveldara að meðhöndla og fyrirbyggja frekari vandamál.
"Áttuðum okkur ekki á því að þetta væri alvarlegt ástand"
Mikilvægt er að skoða tennur dýrsins reglulega með hefðbundinni tannskoðun. Ráðlagt er að eigendur fylgist reglulega með tannheilsu en tannheilsa er einnig metin í árlegri skoðun hjá tannlækni.
Í slíkri skoðun er aðeins hægt að meta sýnilegan hluta tannheilsunnar á við tannstein, tannholdsbólgu og skemmdir sýnilegar með augum.
Eigendur geta heima fyrir æft sig að skoða tennur og tannheilsu dýrsins til þess að stuðla að fyrirbyggjandi umönnun og grípa fyrr inn í sýnileg vandmál.
Tannburstun katta og hunda
Fyrst um sinn er markmiðið einungis að venja dýrið á ferlið í kringum tannburstunina. Það er betra að byrja á smáum skrefum og gera upplifunina jákvæða heldur en að bursta strax allar tennur.
Þegar kemur að vali á tannbursta og tannkremi er mikilvægt að velja mjúka tannbursta (jafnvel ætlaða börnum eða fullorðnum) ásamt því að finna tannkrem sem er vottað af dýralæknum með kjötbragði í stað myntu.
Gott er að æfa 1-3 skref í einu, eftir því hvernig dýrinu líður. Hér að neðan má finna lista sem er gott að hafa í huga við þjálfunina.
Ásamt reglubundinni tannburstun getur sérhæft tannheilsufóður og viðurkennd tannsprey haft jákvæð áhrif. Í tannheilsufóðri má finna kalkbindandi efni sem grípa kalk í munnvatni dýrsins en það spilar stærstan þátt í myndun skánar sem verður síðar að tannsteini. Tannheilsufóður hafa einnig sérstaka lögun á fóðrinu sem stuðlar að því að hvetja dýrið til að brytja fóðrið og hafa þannig "tannburstandi" áhrif.
Auk tannheilsufóðurs má nota til stuðnings tannheilsusprey, en "Fresh Bark" frá BioGroom inniheldur klórhexidíð sem hjálpar til við að draga úr einkennum tannholdsbólgu. Slíkt hentar vel eftir tannhreinsun hjá fagaðila.