VHN Cat Urinary S/O - blautfóður

Fæst einungis hjá dýralæknum! 

Sjúkrablautmatur fyrir ketti með þvagsteina

Hjálpar til, ásamt lyfjameðferð, við að leysa upp allar tegundir strúvítkristalla. Einnig virkar fóðrið sem fyrirbyggjandi meðferð og við að koma í veg fyrir endurtekna kalsíum-oxalat kristalla. Hátt vatnshlutfall hjálpar til við að þynna þvagið út en slíkt dregur úr myndun kristalla. Fóðrið hjálpar til við að draga úr magni jóna í þvaginu sem eiga þátt í myndun kristalla.

Ráðlögð notkun:

  • Við strúvít þvagsteinum, upplausn þeirra og sem fyrirbyggjandi meðferð

  • Gegn endurtekinni myndun kalsíum-oxalat kristalla

Ekki ráðlagt að nota í eftirfarandi tilfellum:

  • Ef um nýrnabilun er að ræða

  • Hjartabilun þar sem natríum hlutfall blóðsins er of hátt

  • Í uppvexti, á meðgöngu eða mjólkurtímabili

Næringargildi

Prótein: 11.0% - Fita: 3.5% - Trefjar: 1.0% - Raki: 79.5%