


Sjúkrafóður fyrir hunda með viðkvæma tannheilsu
Royal Canin Dental er vandlega samsett, næringarríkt fóður sem er sérstaklega hönnað til að styðja við og viðhalda góðri tann- og munnheilsu hjá miðlungs og stórum hundum.
VÖRN GEGN TANNSKÁN
Þessi formúla hefur verið klínískt sönnuð að draga á áhrifaríkan hátt úr myndun og uppsöfnun tannsteins.
FÓÐURLÖGUN
Sérstök lögun og stærð fóðurkúlnanna gerir það að verkum að þær "nudda/bursta" tennur þegar hundurinn bryður fóðrið og dregur þannig verulega úr myndun tannsteins.
STUÐNINGUR VIÐ BEIN OG LIÐHEILSU
Styður við heilsu beina og liðamóta í miðlungs og stórum hundum með jafnvægi í stein- og næringarefnum.
NÆRINGARGILDI
Prótein: 22%. Trefjar: 3,1%. Fita: 17%.