Maine Coon - blautfóður

Blautfóður fyrir fullorðna Maine Coon ketti

Hjartastarfsemi

Fóðrið inniheldur nauðsynleg og mikilvæg næringarefni, til dæmis tárín og EPA/DHA fitusýrur til þess að hjálpa til við að viðhalda heilbrigðri hjartastarfsemi en Maine Coon tegundin hefur átt það til að glíma við vandamál tengd hjartanu (e. Hypertrophic cardiomyopathy).

Stuðningur við liði

Maine Coon er stór og þung kattategund og því mikilvægt að fylgjast vel með álagi á liði. Í þurrfóðrinu er nákvæm blanda af fjölómettuðum fitusýrum (EPA og DHA) sem smyrja liði og draga úr liðverkjum. Sömuleiðis inniheldur fóðrið glúkósamín og kondróítin en niðurstöður rannsókna á báðum þessum efnum gefa til kynna að þau séu liðuppbyggjandi og viðhaldi þar með heilbrigðum liðamótum.

Heilbrigður feldur

Inniheldur ómega-3 og ómega-6 fitusýrur sem styrkja ytri vörn húðarinnar og þannig stuðlar fóðrið að glansandi feldi og heilbrigðri húð.

Næringargildi

Prótein: 10% - Trefjar: 1.6% - Fita: 4.3% - Vatn: 78%.

Selt í kassa: 12 x 85gr.