Mother & Babycat 195gr

Blautfóður sem fyrsta fæða kettlinga og til 4 mánaða aldurs - hentar einnig mjólkandi læðum

Fyrsta fæða

Kæfulík áferð auðveldar stökkið úr móðurmjólk/þurrmjólk og yfir í fasta fæðu.

Bragðgott

Bragðgott sem hvetur læðuna til að éta á meðgöngunni og á meðan hún gefur á spena. Milt og auðmeltanlegt sem fyrsta fóður kettlinga.

Andoxunarefni

Stuðlar að styrkingu ónæmiskerfis læðu og kettlinga.

Styrking meltingarvegar

Inniheldur góðgerlafæði, MOS og FOS, sem annars vegar eykur heilbrigði jákvæðra örvera í meltingarvegi (FOS) og hins vegar hlutleysir óæskilegar örverur í meltingarvegi (MOS).

Næringargildi

Prótein: 10.5% - Fita: 5.5% - Trefjar: 0.9% - Raki: 79.0%.