Outdoor 7+

Þurrfóður fyrir útiketti eldri en 7 ára

Heilbrigðari öldrun

Hjálpar fullorðnum köttum eldri en 7 ára að takast á við byrjun á öldrunareinkennum. Inniheldur aðlagað magn vítamína, steinefna og annarra mikilvægra efna, m.a. grænt te, fjólfenóla og C-vítamín sem eru allt sterkir andoxarar (þráarvarnaefni) og EPA/DHA fitusýrur sem smyrja liðina og draga úr verkjum.

Orkuríkt

Kettir sem fara út þurfa orkuríkara fóður. Outdoor þurrfóðrið uppfyllir orkuþörf útikatta enda er það orkuríkara en hefðbundið fóður fyrir inniketti.

Nýrnastarfsemi

Skert starfsemi nýrna er algeng í eldri köttum. Fóðrið inniheldur aðlagað magn fosfórs sem minnkar álag á nýrun og styður þar með við heilbrigða nýrnastarfsemi.

Heilbrigðir liðir

Í Outdoor þurrfóðrinu er nákvæm blanda af fjölómettuðum fitusýrum (EPA og DHA) sem smyrja liði og draga úr liðverkjum. Sömuleiðis inniheldur fóðrið glúkósamín og kondróítin en niðurstöður rannsókna á báðum þessum efnum gefa til kynna að þau séu liðuppbyggjandi og viðhaldi þar með heilbrigðum liðamótum.

Næringargildi

Prótein: 28% - Fita: 20% - Trefjar 1.5% - Fosfór: 0.79% - EPA/DHA: 4 g/kg.