British Shorthair

Þurrfóður fyrir British Shorthair ketti eldri en 12 mánaða

Tannheilsa

Tannheilsa á það til að vera léleg í British Shorthair og er lögun fóðurkúlnanna þannig að bugðóttar línur kúlnanna aðstoða breiðkjálka tegundarinnar við að ná kúlunum upp og hvetur þá til að tyggja sem stuðlar að bættri tannheilsu.

Hjartastarfsemi

Tegundin getur átt við hjartavandamál að stríða (e. Hypertrophic cardiomyopathy) og því inniheldur fóðrið tárín, L-karnitín og ómega-3 fitusýrur sem stuðla að heilbrigðum hjartavöðva.

Bein og liðamót

British Shorthair er nokkuð stór tegund og því er aukin hætta á vandamálum í liðum. Í þurrfóðrinu er nákvæm blanda af fjölómettuðum fitusýrum (EPA og DHA) sem smyrja liði og draga úr liðverkjum. Sömuleiðis inniheldur fóðrið glúkósamín og kondróítin en niðurstöður rannsókna á báðum þessum efnum gefa til kynna að þau séu liðuppbyggjandi og viðhaldi þar með heilbrigðum liðamótum.

Heilbrigð melting

Stuðlar að heilbrigðri meltingu með góðgerlafæðu (MOS og FOS) og auðmeltanlegum próteinum.

Þvagleiðaraheilsa

Eins og flestir kettir eiga British Shorthair kettir á hættu að fá þvagleiðaravandamál og því eru steinefnin í fóðrinu valin þannig að þau hvetja til drykkju og minnka álag á nýrun sem minnkar hættuna á myndun kristalla og síðar meira mögulegra steina í þvaginu.

Vöðvamassi

Þetta er sterkbyggð tegund og hefur aukna próteinþörf vegna aukins vöðvamassa – 34% prótein!

Næringargildi

Prótein: 34% - Trefjar: 5.3% - Fita: 19%.