Maxi Light Weight Care

Þurrfóður fyrir stóra hunda í ofþyngd

Heildstætt fóður fyrir fullorðna stóra hunda (>25kg) eldri en 12-15 mánaða sem eru of þungir.

Próteinríkt

Hærra próteinhlutfall og lágt fituinnihald auk L-karnitíns sem stuðlar að aukinni brennslu en viðheldur vöðvamassa og hjálpar fóðrið því hundinum að léttast.

Aukin sedda

Sérstakar trefjar eru í fóðrinu sem draga í sig vatn og þenjast út. Þetta stuðlar að aukinni seddutilfinningu og minnkar hungur á milli mála.

Fóðurkúlurnar

Fóðurkúlurnar eru þannig í laginu að þær hvetja hundinn til að tyggja og á þann hátt dregur úr tannsteinsmyndun.

Tannheilsa

Lögun fóðurkúlnanna dregur auk þess úr tannsteinsmyndun því þær hvetja hundinn til að tyggja og því fá tennurnar ákveðna "burstun" frá fóðurkúlunum.

Heilbrigðir liðir

Liðheilsa stórra hunda á það til að vera vandamál fyrst og fremst vegna ofþyngdar - því er mjög mikilvægt að ná þyngd niður í of þungum hundum. Fóðrið aðstoðar auk þess varðandi liðheilsu og inniheldur bæði glúkósamín og kondróítin en bæði þessi efni leika lykil hlutverk í heilbrigðum liðum. Auk þess er í fóðrinu ómega-3 fitusýrur sem draga úr bólgum sem oft myndast í liðum.

Viðurkenndur árangur

Niðurstöður rannsókna sem framkvæmdar voru hjá rannsóknamiðstöð Royal Canin í Frakklandi kom í ljós að hundar sem voru lítið eitt of feitir voru 90% líklegri til að ná heilbrigðri þyngd yfir átta vikna tímabil ef þeir átu eingöngu Light Weight fóðrið sbr. við þá hunda sem ekki fengu Light Weight fóðrið.

Næringargildi

Prótein: 27.0% - Fita: 11.0% - Trefjar 11.4%- Per kg: ómega-3 fitusýrur: 5.2 g.