Sporting Life Energy Trail 4300 15kg

Þurrfóður fyrir vinnuhunda í meðal-mikilli þjálfun

Þurrfóður sem inniheldur mikið magn fitusýra sem gefa aukna orku og úthald undir stöðugu álagi - orkuminna en 4800 og hentar því hundum "off-season".

Auðmeltanlegt

Fóður ríkt af auðmeltanlegum próteinum (LIP) og fitu. Trefjar og góðgerlar (MOS) til þess að styðja við meltingu undir álagi.

Fitusýrusamsetningin í fóðrinu er með þeim hætti að hundurinn þarf ekki að eyða mikilli orku né fyrirhöfn (blóðflæði til meltingarvegar) við að melta kúlurnar þar sem um er að ræða miðlungs stuttar fitusýrur sem krefjast ekki mikillar orku til niðurbrots og flutnings frá meltingarvegi yfir í blóðið (e. passive diffusion).

Vöðvar

Stuðlar að auknu súrefnisflæði til vöðva og viðheldur vöðvamassa með háu próteinhlutfalli.

Heilbrigðir liðir

Fóðrið inniheldur bæði glúkósamín og kondróítin en bæði þessi efni leika lykil hlutverk í heilbrigðum liðum. Auk þess er í fóðrinu ómega-3 fitusýrur sem draga úr bólgum sem oft myndast í liðum. Öll þessi efni og hlutverk þeirra verða sérstaklega mikilvæg í hundum sem eru í mikilli þjálfun/vinnu.

Andoxunarefni

Blanda andoxunarefna sem hlutleysa sindurefni sem verða til undir auknu álagi líkamans og minnka þannig skaðleg áhrif þeirra á líkamann.

Fyrir hverja?

Fyrir hunda í vinnu (sleðahundar, veiðihundar, bikejöring, canicross o.s.frv.).
Fyrir matvanda hunda sem fóðrast illa og eru jafnvel of horaðir.

ATH! Fóðrið er orkuríkt og mikilvægt að fylgjast með holdafari hundsins ef hann er ekki í mikilli vinnu.

Næringargildi

Prótein: 28.0% - Fita: 21.0% - Trefjar: 2.6% - Lútein: 14.5 mg/kg fóðurs - Beta-karótín: 2.0 mg/kg fóðurs.

 

Customer Reviews

Based on 1 review
100%
(1)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
G
Guðmundur Ivar Eggertsson
Mæli með

Fenrir okkar German Shephard er á þessu fóðri. Hann er vinnuhundur mikill þar sem hann fer með mér útum allt þar sem ég er smiður og hann gjörsamlega elskar matinn sinn og hefur orku allan daginn að djöflast með mér.
Mæli með þessu fóðri ef hundurinn ykkar þarf orkumikið fóður.