VHN Dog Anallergenic

Fæst einungis hjá dýralæknum! 

Sjúkrafóður fyrir hunda með fóðurofnæmi eða fóðuróþol

Smáir ofnæmisvakar

Inniheldur próteingjafa úr vatnsrofnum fjöðrum, sem inniheldur sérlega lágan mólþunga af ólígópeptíðum og amínósýrum sem stuðlar að því að líkaminn þekki ekki ofnæmisvakann og dregur því úr líkum á ofnæmisviðbrögðum.

Styður heilbrigða húð

Langkeðja ómega-3 fjölómettaðar fitusýrur sem hjálpa til við að styðja við náttúrulegar varnir húðarinnar.

Lágmarks smithætta

Framleiðsluferlið dregur verulega úr hættu á smiti á milli fóðurtegundi í framleiðsluferlinu en slíkt er mikilvægt fyrir hunda með mikið ofnæmi.

Andoxunarefni

Samverkandi andoxunarefni sem stuðla að því að hlutleysa sindurefni og draga þar með úr skaðsemi þeirra.

Ráðlögð notkun við:

  • Fóðurofnæmi, með einkennum í húð og/eða meltingarvandamálum

  • Atópískri húðbólgu í hundum (CAD)

  • Krónískum niðurgangi

  • Þarmabólgu (IBD)

ATH! Þegar fóðrið er notað til þess að greina fóðuróþol eða sem útilokunarmeðferð þarf, til þess að sjá tilætlaðan árangur, að gefa eingöngu Anallergenic fóðrið og enga aukabita eða annað fóður í 8-12 vikur. Eftir það, ef vel gengur, má í samráði við dýralækni fara yfir næstu skref.

Próteingjafi: vatnsrofið prótein úr fjöðrum (lár mólþungi af ólígópeptíðum og amínósýrum). Við vatnsrofun próteina er ofnæmsivakinn brotinn smátt niður.

Kolvetnagjafi: maís sterkja

Næringargildi

Prótein: 18% - Fita: 16.5% - Trefjar: 1.7%. Per kg: Nauðsynlegar fjölómettaðar fitusýrur (línólu-sýrur – Arakidóník-sýru): 27.2 g.

Stærð: 3kg og 8kg