Babydog Milk - hvolpamjólk

Þurrmjólk fyrir móður og hvolpa frá fæðingu

Uppvöxtur

Þurrmjólk sem stuðlar að stöðugum uppvexti - næringargildi þurrmjólkurinnar er eins líkt móðurmjólk hvolpa eins og hægt er. Mjólkin er orku- og próteinrík og tekur þannig mið af mikilli heildar orkuþörf á þessum viðkvæma tíma.

Auðmeltanleg

Þurrmjólkin er sérstaklega auðmeltanleg með formeltum próteinum (LIP) sem gera það að verkum að líkurnar á hverskonar ofnæmi eru minni en annars væri. Sömuleiðis er laktósamagn svipað og í móðurmjólkinni sem hentar ungum hvolpum einstaklega vel. Mjólkin hentar einnig sérstaklega meltingarvegi hvolpa þar sem hún inniheldur ekki sterkju (ungir hvolpar framleiða ekki nægilegt magn amýlasa til þess að melta/brjóta niður sterkju). Viðbætt góðgerlafæða (FOS) styður við heilbrigða meltingarflóru.

Næringargildi

Prótein: 33% - Fita: 39%.