Puppy ProTech - broddmjólk

Broddmjólk fyrir nýbura/nýfædda hvolpa sem einhverja hluta vegna eru ekki að drekka af spena. Má einnig nota með móðurmjólk fyrstu vikurnar eftir got.

Nýburamjólk

Nýburamjólk sem hentar einstaklega vel sem næring fyrir nýbura/nýfædda hvolpa sem einhverra hluta vegna eru ekki að drekka af spena á fyrstu klukkustundunum eftir fæðingu. Samsetningin tekur mið af samsetningu móðurmjólkarinnar.

Broddmjólk

Samsetning er einstök þar sem er að finna öll þau næringarefni sem eru mikilvæg strax eftir fæðingu. Inniheldur sérstaklega viðbætt ónæmisglóbúlín gegn E-Coli og CPV (Canine Parvo Virus) úr þurrkuðum eggjum sem styður við broddviðbótina í þurrmjólkinni. Inniheldur sérlega auðmeltanleg prótein (LIP) og DHA til þess að styðja við þroska heila og þar með við vitræna virkni. Broddmjólkin getur stuðlað að auknum lífslíkum hjá nýfæddum hvolpum sem ekki ná að drekka af spena.

Notkun

Má nota eitt og sér ef mjólk úr móður er ekki tiltæk og/eða samhliða móðurmjólk fyrstu vikur lífsskeiðs (sjá leiðbeiningar á umbúðum).

Leiðbeiningar um notkun er að finna á umbúðum.

6x50g pokar ásamt pela í hverju boxi.

Mikilvægt er að farið sé eftir leiðbeiningum framleiðanda nema dýralæknir hafi gefið leiðbeiningar um annað.

Næringargildi

Prótein: 31% - Fita: 35%.

 

Customer Reviews

Based on 2 reviews
100%
(2)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
S
Sandra Björk - Darktimes Ræktun
Puppy ProTech - broddmjólk

Þetta er mín allra uppáhalds Royal Canin varan ♥️
Þessi mjólk hefur bjargað okkur ítrekað og haldið lífi í hvolp/um sem voru virkilega tæpir á að lifa af t.d vegna e.coli sýkingar ofl.
Misstum 8 af 9 hvolpum í einu goti og er ég handviss um að mjólkin spilaði þar stórt hlutverk 🙏
Í dag færi ég aldrei í got nema eiga þetta til just in case.
Get eiginlega ekki útskýrt í nógu mörgum orðum hversu mikil snilld þetta er 🤞
Læt fylgja mynd af Astro sem var 1 af 9 hvolpa sem lifði af

S
S.G.G.

Ég hef passað að eiga broddmjólkina til fyrir öll mín got og það er mikil öryggistilfinning að geta gripið í hana ef eitthvað fer úrskeiðis. Hingað til hafa tíkurnar mínar mjólkað vel og ég ekki þurft að grípa í hana fyrir nýfædda hvolpa ennþá. Ég hef hins vegar notað hana þegar ég bý til graut úr Starter þurrfóðrinu til þess að koma hvolpunum á bragðið þegar þeir prófa fasta fæðu í fyrstu skiptin.