Ofnæmis- og húðráðgjöf hjá dýralækni fyrir þá hunda og ketti þar sem greining/grunur er um ofnæmi (umhverfis- og/eða fóðurofnæmi), kláða, ertingu í húð og/eða endurtekin eyrnavandamál. Einstaklingsmiðað 8 vikna fóður- og umönnunarplan innifalið.
Frábær og gagnleg ráðgjöf fyrir ofnæmi hjá mínum hundi
Mjög góð og gagnleg ráðgjöf. Ég fékk góðar upplýsingar og ráð varðandi ofnæmið hjá hundinum mínum og fór mun fróðari heim. Mæli hiklaust með! 🐾❤️
M
Margit
Ofnæmisráðgjöf fyrir Hugo
Eftir áralanga þrautagöngu hjá dýralæknum þá fengum við loksins góða greiningu og ráðleggingar um hvernig best væri að tækla erfitt ofnæmi sem mini púðlan okkar hann Hugo hefur glýmt við í nokkur ár. Við komumst strax í samband við frábæran dýralækni og ofnæmisráðgjafa Dýrheima og getum 100% mælt með þeim.