Dalmatian Puppy

Þurrfóður fyrir Dalmatíu hvolpa

Ónæmiskerfi

Stuðlar að heilbrigðum vexti Dalmatíuhvolpa. Á uppvaxtarskeiði er ónæmiskerfi hvolpsins viðkvæmt og inniheldur fóðrið því blöndu andoxunarefna (þ.á.m. E-vítamín) til þess að styðja við ónæmiskerfið og blöndu góðgerlafæðis sem eflir meltingarveginn en heilbrigði meltingarvegar á meðal hvolpa segir mikið til um styrk ónæmiskerfisins. 

Fóðurkúlur

Fóðurkúlurnar eru lagaðar að þörfum Dalmatíuhvolpa, meðal annars er snýr að stærð og lögun og hvetur þá til að tyggja og styðja þar með við heilbrigði tanna.

Liðir

Innihaldsefnin stuðla að heilbrigðum beinum og liðum, þar með talinn ómega-3 fitusýrur sem hjálpa til við að halda liðbólgum í lágmarki og glúkósamín og kondróítin sem stuðla að uppbyggingu liðbrjósks en liðvandamál eru þekkt hjá þessari tegund og öðrum stórhundategundum sérstaklega þegar hundarnir eldast. 

Húð og feldur

Fóðrið styrkir náttúrulegar varnir húðarinnar og viðheldur heilbrigðum feldi með EPA&DHA fitusýrum ásamt hjólkrónuolíu.

Melting

Fóðrið er blanda af hágæða auðmeltanlegum próteinum (LIP) og góðgerlafæðu (FOS & MOS) til þess að styðja við heilbrigðra þarmaflóru.

Þvagfæraheilsa

Lágt í púrin en Dalmatíuhundar hafa átt það til að mynda þvagleiðarasteina/átt við nýrnavandamál að stríða og lækkun púrins, sem finnst náttúrulega í mörgum mat og fóðri, minnkar hættuna á steinum hjá þessari tegund.

Hjarta

Ríkt af tárín og EPA/DHA fitusýrum sem styðja við hjartaheilsu en í gegnum tíðina hafa Dalmatíuhundar þurft að glíma við hjartavandamál þó svo að þessi veikleiki þynnist hratt út, sem betur fer. 

Næringargildi

Prótein: 25.0% - Fita: 18.0% - Trefjar: 3.5% - Kalk: 1.25% - Fosfór: 0.99% .