Eyrnaskoðun er sérhæfð skoðun þar sem dýralæknir metur heilbrigði eyrna og greinir möguleg vandamál. Skoðunin felur m.a. í sér mat á eyrnagangi og hljóðhimnu og hvort um sé að ræða eyrnabólgu, sýkingu, ofnæmi, sníkjudýr eða önnur vandamál.
Mælt er með eyrnaskoðun ef dýrið er með roða í eyrum, klórar sér í eyrum, hristir höfuð eða sýnir merki um óþægindi.
Ég var rosalega ánægð með þjónustuna sem við fengum. Ég kom með 14 mánaða gamla standard poodle tíkina mína sem hefur verið af og til með eyrnavesen, en það hefur ekki alltaf verið augljóst hvað væri í gangi þar sem ekkert sást beint og lítið kom þegar við vorum að hreinsa eyrun heima.
Það var ótrúlega gott að fá staðfestingu á því að það væri raunverulega eitthvað í eyrunum ennþá, þrátt fyrir að það sæist ekki utan frá. Dýralæknirinn tók sýni og þá kom í ljós að hún var með svepp, sem útskýrði vel af hverju þetta hafði verið að angra hana.
Núna fær hún rétta meðhöndlun og við ætlum líka að fylgjast betur með fóðrinu hennar í framhaldinu. Mér fannst mjög vel farið yfir stöðuna, þjónustan var hlýleg og fagleg og ég fór heim með miklu betri skilning á því hvað væri að og hvernig við getum hjálpað henni áfram. Svo er kaffihúsið líka mjög notalegt!
Mæli innilega með henni Andreu dýralækni!
E
Elísabeth Eggerz
Svo æðislegt starfsfólk sem veit hvað þau eru að tala um!!
Ég kom með tveggja ára Bullmastiff hundunn minn í skoðun vegna roða í eyunum og þær voru hreint snillingar að hjálpa mér og ráðleggja mér hvað ég ætti að gera. fór ég svo í eftirfylgd hjá dýralækninum í mínum bæ og þær í Dýrheimum voru alltaf tilbúnar að veita aðstoð varðandi hundunn minn og meiri að segja fylgdu eftir til að sjá hvernig var að ganga. Þolinmæði, fagmennska og hlýleiki er það sem ég fann þegar ég kom til þeirra. Mæli svo með að kíkja á þær og fá ráð og hjálp ef það er einhvað að angra hundinn þinn í eyrunum!