VHN Dog Gastrointestinal Moderate Calorie

Fæst einungis hjá dýralæknum! 

Sjúkrafóður fyrir hunda með meltingarvandamál og eiga til að þyngjast of mikið

Fóðrið er sérstaklega hannað til að styðja við meltingarfærin í þeim tilgangi að draga úr frásogssjúkdómum og bæta upp fyrir næringartap vegna meltingarvandamála.

Hráefnin eru auðmeltanleg með auknu magni steinefna og lægra magni af fitu. Minna magn hitaeininga gerir það að verkum að það hentar sérstaklega hundum sem erfitt er að halda í kjörþyngd (geldir hundar/offita/lágur orkustuðull).

Melting

Auðmeltanlegt og trefjaríkt fóður sem inniheldur góðgerlafæðuna FOS og MOS, rófumassa og hrísgrjón til að styðja við heilbrigða þarmaflóru og þarmahreyfingar.

Hitaeiningaskert

Færri hitaeiningar hjálpa til við að sporna við þyngdaraukningu í geldum hundum eða hundum sem gjarnir eru á að þyngjast.

EPA/DHA

EPA og DHA langkeðja fjölómettaðar fitusýrur hjálpa til við að styðja við heilbrigða meltingarstarfsemi.

Ráðlögð notkun gegn:

  • Langvinnum- og bráðaniðurgangi

  • Þarmabólgum (IBD)

  • Meltingarvandamálum

  • Ófullnægjandi starfsemi briskirtils

  • Magamólgum

  • Ristilbólgum

  • Anorexíu

  • Bakteríusýkingum í meltingarfærum

Næringargildi:

Prótein: 23% - Fita: 11% - Trefjar: 2.3% - Natríum: 0.4% - Kalíum: 0.7% - EPA/DHA: 2.1 g/kg.

 Stærð: 2kg