Að ættleiða kött - Getur verið mesta lukka lífs þíns

mars 02, 2026 6 mínútur að lesa


Í tilefni af Alþjóðlegum degi ættleiðingar katta, sem haldinn er 2. mars ár hvert, er mikilvægt að vekja athygli á stöðu heimilislausra katta og þeirri ábyrgð sem fylgir því að taka kött inn á heimilið. Fjöldi katta bíða eftir varanlegu heimili, þar á meðal margir eldri kettir sem oft sitja lengur eftir þrátt fyrir að hafa mikið að bjóða sem félagar.


Að ættleiða kött er langtímaskuldbinding sem getur staðið í 15 ár eða lengur og krefst meðvitaðrar ákvörðunar um umönnun, nærveru og viðeigandi aðbúnað. Með aukinni fræðslu og meðvitund má stuðla að ábyrgri ættleiðingu og bæta lífsgæði katta sem bíða eftir öðru tækifæri.

Kettir

Að fá kött inn á heimilið

Áður en endanleg ákvörðun er tekin um að ættleiða kött er mikilvægt að staldra við og meta eigin aðstæður. Að velja rétt heimili fyrir kött eykur líkur á farsælli aðlögun og góðri velferð til lengri tíma, sérstaklega þegar um er að ræða eldri ketti sem gætu haft ákveðnar þarfir eða venjur. Með því að fara yfir nokkra lykilþætti fyrirfram má draga úr líkum á að upp komi áskoranir síðar.


Það er mikilvægt að spyrja sig eftirfarandi spurninga áður en ákvörðunin er tekin:

  • Lífstíll: Er ég mikið heima eða verður kötturinn mikið einn?

  • Fjárhagur: Það þarf að gera ráð fyrir dýralæknakostnaði, fóðurkostnaði og mögulegum sjúkratryggingakostnaði.

  • Aðstæður: Hefur kötturinn möguleika á því að vera útiköttur eða verður hann alfarið inniköttur? 

  • Val á ketti: Kettlingur eða fullorðinn köttur? Hreinræktaðan kött eða húskött?

Kostir þess að ættleiða eldri kött

Að ættleiða fullorðinn kött hefur marga kosti sem stundum gleymast í umræðunni um kettlinga. Fullorðnir kettir hafa nú þegar mótaðan persónuleika og skapgerð, sem gerir nýjum eigendum auðveldara að velja kött sem passar við lífsstíl og heimilisaðstæður.


Fullorðnir kettir eru einnig oft rólegri og fyrirsjáanlegri í hegðun en kettlingar, sem geta verið orkumiklir og krefjandi á fyrstu mánuðum lífsins. Sérstaklega á þetta við þegar kettlingar fara of snemma frá móður sinni. Margir fullorðnir kettir eru þegar orðnir kassavanir og hafa tileinkað sér grunnhegðun á heimili, sem getur einfaldað aðlögun á nýju heimili. Fyrir heimili sem vilja rólegan og stöðugan félaga getur fullorðinn köttur því verið mjög góður kostur.

  • Skapgerð er þekkt: Auðveldara er að meta hvort kötturinn sé kelinn, félagslyndur eða sjálfstæður. Oft eru eldri kettir rólegri og fyrirsjáanlegri og auðveldari fyrir eigendur sem eru að fá sér kött í fyrsta sinn.

  • Hentugleiki fyrir heimilið: Hægt er að fá upplýsingar um hvort kötturinn sé vanur börnum, hundum eða öðrum köttum.

  • Inni- eða útiköttur: Sumir kettir sætta sig vel við að vera eingöngu innandyra, á meðan aðrir verða vansælir ef þeir fá ekki að fara út. 

ALGENGAR MÝTUR UM ÆTTLEIÐINGAR KATTA

Ýmsar mýtur lifa enn góðu lífi um ættleiðingu fullorðinna og eldri katta. Mikilvægt er að skoða þessar upplýsingar gagnrýnið og byggja ákvarðanir á raunhæfum upplýsingum um hegðun og heilsu katta.


„Maður tengist ekki fullorðnum ketti eins vel.“
Það getur verið afar gefandi að taka að sér fullorðinn kött og margir mynda sterk og djúp tengsl við nýja eigendur. Sumir fullorðnir kettir þurfa lengri aðlögunartíma á nýju heimili, en með þolinmæði, fyrirsjáanleika og jákvæðri nálgun ná þeir yfirleitt góðri tengslamyndun.


„Eldri kettir vilja ekki leika við fólk.“
Þótt eldri kettir séu almennt rólegri en kettlingar hafa flestir þeirra áfram þörf fyrir leik og örvun. Leikur styður við náttúrulega veiðihegðun katta, eykur velferð og styrkir tengsl milli kattar og eiganda óháð aldri.


„Eldri kettir hafa alltaf fleiri heilsufarsvandamál.“
Þó líkur á ákveðnum sjúkdómum aukist með aldri lifa margir kettir heilbrigðu lífi langt fram á efri ár. Margir kettir ná 15 ára aldri eða eldri án alvarlegra vandamála. Rétt er að hafa í huga að heilsufarsáskoranir geta komið fram á hvaða æviskeiði sem er, einnig hjá kettlingum. Með reglulegri heilsufarsskoðun, viðeigandi næringu og góðri umönnun er oft hægt að viðhalda góðum lífsgæðum eldri katta um árabil.

Gulur köttur

Fóðurval katta

Fóðurval fyrir ketti á alltaf að vera einstaklingsmiðað. Til að velja rétt fóður er mikilvægt að meta heildarmynd kattarins, þar á meðal aldur, geldingarstöðu, lífsstíl, feldgerð og mögulega sjúkdóma. Með markvissri næringu má styðja við heilsu, líkamsástand og lífsgæði kattarins til lengri tíma.


Aldur katta

Næringarþarfir katta breytast með aldri. Kettlingar eru á hröðu vaxtarskeiði og þurfa fóður sem er sérsniðið að heilbrigðum vexti og þroska. Eldri kettir hafa hins vegar aðrar þarfir; þar skiptir máli að fóður styðji meðal annars við liðheilsu, nýrnastarfsemi og viðhald vöðvamassa, jafnframt því að vera nægilega orkuríkt fyrir breytt efnaskipti.


Ófrjóir/geldir kettir

Við geldingu fressa og ófrjósemisaðgerð læða verða verulegar hormónabreytingar. Framleiðsla kynhormóna minnkar, efnaskipti hægjast og brennsla hitaeininga minnkar, sem getur aukið hættu á þyngdaraukningu. Fóður fyrir gelda ketti er sérstaklega hannað með þetta í huga. Það inniheldur meðal annars L-karnitín sem styður fituefnaskipti, viðeigandi próteinmagn til að viðhalda vöðvamassa og næringarsamsetningu sem styður heilbrigt þvagfærakerfi.


Inni- eða útiköttur

Lífsstíll hefur veruleg áhrif á orkuþörf. Innikettir eru almennt minna virkir en útikettir og því er mikilvægt að koma í veg fyrir óæskilega þyngdaraukningu. Fóður fyrir inniketti er aðlagað minni orkuþörf og inniheldur gjarnan trefjasamsetningu sem hjálpar til við að draga úr hárboltum og minnka lykt af hægðum. Fyrir útiketti þarf hins vegar orkuríkara fóður sem mætir meiri virkni. Slíkt fóður styður einnig við húðvarnir og liðheilsu, sem er mikilvægt fyrir virka ketti.


Kettir með mikinn feld

Kettir með þykkan eða langan feld gleypa meira hár við snyrtingu og eru því líklegri til að mynda hárbolta. Í sumum tilfellum getur uppsöfnun hárs í meltingarvegi valdið óþægindum eða jafnvel stíflu. Sérhæft hárboltafóður inniheldur trefjablöndu sem örvar eðlilega þarmahreyfingu og hjálpar til við að flytja hár í gegnum meltingarveginn. Slík fóður innihalda oft einnig góðgerlafæðu (t.d. FOS) sem styður heilbrigða meltingu.


Kettir með heilsufarsvandamál

Ef köttur er með greindan sjúkdóm þarf að aðlaga næringu sérstaklega að því ástandi. Til dæmis þurfa kettir með nýrnasjúkdóm fóður sem er sérhannað með hóflegu próteinmagni og lágu fosfórinnihaldi til að styðja við nýrnastarfsemi og lífsgæði. Í slíkum tilfellum er mikilvægt að velja fóður í samráði við dýralækni eða dýrahjúkrunarfræðing.

Aðlögun kattar á nýju heimili

Þegar köttur flytur á nýtt heimili þarf hann tíma og rými til að aðlagast. Aðlögun er einstaklingsbundin, sumir kettir aðlagast hratt á meðan aðrir eru viðkvæmari og þurfa lengri aðlögunartíma. Best er að leyfa kettinum að kanna nýja umhverfið á eigin hraða.


Gott er að afmarka lítið, öruggt svæði í byrjun þar sem kötturinn hefur aðgang að fóðri, vatni, kattarklósetti, leikföngum og klórustaur. Margir kettir finna sér felustað fyrstu dagana, svo mikilvægt er að gera ráð fyrir slíkum möguleikum við undirbúning svæðisins. Einnig getur verið gott að setja flík með lykt fjölskyldumeðlima á svæðið til að hjálpa kettinum að kynnast heimilislyktinni fyrr.


Það er eðlilegt að nýfluttur köttur borði og drekki minna fyrstu dagana og jafnvel haldi í sér. Ef slíkt ástand stendur lengi yfir getur það haft neikvæð áhrif á heilsu kattarins, því er mikilvægt að fylgjast daglega með fóðrinntöku, vatnsdrykkju og notkun kattasands.


Til að styðja við aðlögun má nota róandi ferómón í umhverfinu, t.d. Feliway sem fæst hjá dýralæknum. Einnig getur sérhæft fóður á við Royal Canin Calm, verið gagnlegt. Það inniheldur meðal annars mjólkurpróteinið alpha-S1 kasín tryptísk hýdrólýsat og amínósýruna L-tryptófan, sem geta stutt við tilfinningalegt jafnvægi hjá viðkvæmum köttum.

American Shorthair

Kynning fyrir börnum


Ef börn eru á heimilinu er mikilvægt að kynna köttinn og barnið saman í rólegu og stýrðu umhverfi. Gott er að barnið sitji kyrrt á gólfinu og leyfi kettinum að nálgast sig á eigin forsendum. Hægt er að nota leikfang til að skapa jákvæða upplifun ef kötturinn sýnir áhuga. Forðast skal að þvinga köttinn í knús eða mikla snertingu. Fylgjast þarf með líkamstjáningu kattarins en mjúkar hreyfingar, hæg blikk og nuddahegðun eru dæmi um merki þess að kötturinn sé að slaka á og sé opinn fyrir samskiptum.


Kynning fyrir öðrum gæludýrum


Ef önnur gæludýr eru á heimilinu er ráðlagt að halda dýrunum aðskildum fyrstu dagana. Ráðlagt er að hafa lokaða hurð á milli þannig að þau venjist lykt hvort annars áður en þau hittast. Næsta skref er að leyfa þeim að sjást án beinnar snertingar, til dæmis með grind eða barnahliði. Að lokum má leyfa stutt og jákvæð samskipti undir nánu eftirliti. Ekki er ráðlagt að skilja dýrin eftir saman eftirlitslaus fyrr en þau hafa sýnt stöðuga og rólega hegðun hvort gagnvart öðru.


Fyrsta útiveran


Þegar kötturinn hefur aðlagast heimilinu og hefur fengið fullan aðgang að húsnæðinu er almennt ráðlagt að bíða í um 2–3 vikur áður en honum er hleypt út. Á þeim tíma styrkist tengslamyndun og kötturinn lærir heimilisrútínuna. Gott getur verið að venja köttinn fyrst við beisli og taum undir eftirliti áður en hann fer laus út. Mikilvægt er að beislið passi vel svo kötturinn geti ekki losað sig úr því.

Mesta lukka lífsins

Að ættleiða kött felur ekki einungis í sér að sjá um kött um komandi ár heldur að opna hjartað fyrir einstaklingi sem þarf á nýju upphafi að halda. Hvort sem valið verður kettlingur, fullorðinn köttur eða köttur með sérþarfir er það einstakt tækifæri til þess að bjóða ketti umhverfi til að blómstra í. Með þolinmæði, góðum undirbúningi og virðingu fyrir þörfum kattarins verður aðlögunin yfirleitt farsæl og tengslin geta orðið ótrúlega dýrmæt og gefandi.

Andrea dýralæknir


Andrea Björk Hannesdóttir

Andrea er dýralæknir að mennt en hún stundaði nám við Háskólann í Kaupmannahöfn (Københavns Universitet) og hefur aukið við sig nám í neyðarlækningum (Akut medicine) hjá ESAVS. Áhugasvið Andreu eru húðsjúkdómar, atferlisfræði og næringarfræði hunda og katta. Andrea starfar hjá Dýrheimum við ráðgjöf tengda næringu í Heilsutékki auk annarrar fræðslu.