Næring tíka á meðgöngu og fyrsta fæða hvolpsins

febrúar 19, 2026 7 mínútur að lesa

Mikilvægt er að hlúa velað fyrstu skrefum lífsins þegar við hugum að því að para tík. Undirbúningur fyrir got hefst löngu áður en pörun á sér stað og góðheilsa móður leggur grunninn að heilbrigðri meðgöngu og sterkum hvolpum. Gott líkamsástand, jafnvægi í andlegri líðan og rétt næring eru lykilþættir sem stuðla að farsælli meðgöngu og eðlilegum þroska fóstranna.


Meðgöngutími er að jafnaði 61-63 dagar sem er ansi stuttur tími frá því að egg frjóvgast þar til hvolpar koma fæðast. Á þessum tíma eiga sér stað hröð og viðkvæm þroskaferli í móðurkviði. 

Meðgöngutími hvolpa

Næring tíka á meðgöngu

Orkuþörf

Þegar fóðra á tík á meðgöngu er mikilvægt að hafa í huga orkuþörf á mismunandi stigum meðgöngunnar auk næringarþarfa vaxandi hvolpa í móðurkviði. Almenn orkuþörf helst jöfn þar til á 5. viku en þá eykst orkuþörfin smám saman fram að fæðingu um 25-50% en frá 6. viku meðgöngu byrja hvolparnir (fóstrin) að stækka en eru fram að þeim tíma eingöngu að þróast og mynda öll kerfi líkamans. Gangi tíkin með fáa hvolpa má reikna með um 30% aukningu á daglegri orkuþörf en séu hvolparnir fleiri en tveir má margfalda daglega orkuþörf með 1,5-1,7.


Kolvetni á meðgöngu

Á meðgöngu er þörf fyrir auðmeltanleg kolvetni. Rétt magn kolvetna styður við góða matarlyst og hjálpar móður að halda stöðugri orku og líkamsþyngd. Glúkósi, sem myndast úr meltanlegum kolvetnum, er einn heilstu orkugjafi fósturs í móðurkviði og meira en helmingur orkuþarfar fósturs byggir á reglulegu glúkósaframboði.


Tíkur sem fá of kolvetnasnautt fóður á meðgöngu eru í aukinni hættu á minnkaðri matarlyst, þyngdartapi og blóðsykurfalli. Einnig geta afleiðingarnar birst í lægri fæðingarþyngd hvolpa og auknum líkum á fyrirburafæðingu. Ástæðan er sú að meira en helmingur af orkuþörf fósturs í móðurkviði byggir á framboði glúkósa sem myndast úr meltanlegum kolvetnum í fóðrinu.

Á síðasta þriðjungi meðgöngu eykst þessi þörf verulega og því er sérstaklega mikilvægt að tryggja nægilegt framboð meltanlegra kolvetna á því tímabili. Almennt er miðað við að um 60 g af meltanlegum kolvetnum á hverjar 1.000 kcal ME í fóðri geti hjálpað til við að fyrirbyggja kolvetnaskort hjá meðgöngutík.


Fita og prótein

Þörf fyrir fitu og prótein eykst á seinni hluta meðgöngunnar samhliða aukinni orkuþörf tíkarinnar. Ef fóðrið inniheldur lítið af kolvetnum þarf hlutfallslega meira prótein til að mæta orkuþörfinni, allt að tvöfalt meira. Slík próteinaukning getur haft áhrif á meltingu og hægðir tíkarinnar.


Vítamín og steinefni

Lítil en gífurlega mikilvæg snefilefni


Járn og kopar:
Þörf fyrir járn og kopar eykst á meðgöngu vegna aukinnar upptöku þessara efna í lifur fósturanna. Þörfin getur orðið allt að tvöföld miðað við viðhald.


Kalk og fosfór:
Á síðasta þriðjungi meðgöngu fer fram mikil beinmyndun hjá hvolpunum. Mikilvægt er að forðast of mikla kalkgjöf á meðgöngu, þar sem hún getur aukið líkur á vandamálum við fæðingu og truflað kalkjafnvægi móðurinnar (t.d. með skyndilegu kalkfalli eftir got).
Ráðlagt er að viðhalda kalk:fósfór hlutfalli á bilinu 1:1 til 1,5:1.


A-vítamín:
A-vítamín er nauðsynlegt fyrir eðlilega fósturþroskun og formgerð hvolpanna. Hins vegar getur of mikið magn verið skaðlegt og tengst aukinni hættu á vansköpunum, þannig að varast skal ofskömmtun.


Meðgöngutengd Hypoglycemia - sykurfall

Einkenni: Sjaldgæft en alvarlegt bráðatilfelli sem getur komið fram hjá fullgengnum tíkum eftir um 50. dag meðgöngu. Einkennin eru fyrst og fremst frá taugakerfi: vöðvaslappleiki, stífleiki og krampar (oft áberandi í kjálka), ásamt lostástandi. Líkamshiti lækkar gjarnan um allt að eina gráðu. Yfirleitt sjást litlar eða engar breytingar á hjartslætti og öndun.

Orsakir: Helst tengt ójafnvægi í orkuinntöku, til dæmis vegna rangt samsetts fóðurs, breytinga á fóðrunartíðni eða fituríks fóðurs með of litlu magni meltanlegra kolvetna (án samsvarandi aukningar í próteini). Lélegt líkamsástand tíkar og streita eða óþægindi frá legi geta einnig aukið áhættuna.

Meðhöndlun: Krefst tafarlausrar innlagnar á dýraspítala. Veita þarf vökvameðferð með glúkósa í æð, ásamt tíðri gjöf kolvetnaríks blautfóðurs þegar ástand leyfir. Nauðsynlegt er að fylgjast náið með tíkinni fyrstu klukkustundirnar.


Einkenni bráðs blóðsykurfalls geta líkst bráðum kalkskorti (eclampsiu), en meðferð þessara ástanda er mjög ólík. Rétt greining er því lykilatriði.


Pre-post partum eclampsia - bráður kalkskortur

Einkenni: Lífshættulegt ástand sem getur komið fram hjá mjólkandi tíkum og er algengast á 3.–4. viku mjólkurgjafar. Smáhundar og tíkur með mjög stór got eru í aukinni áhættu. Einkenni eru m.a. æsingur, óróleiki, árásargjörn hegðun og flogaeinkenni. Líkamshiti hækkar yfirleitt og öndunartíðni eykst. Ástandið getur einnig komið fram fljótlega eftir fæðingu, sérstaklega hjá litlum tíkum með marga hvolpa.

Orsakir: Helstu orsakir tengjast kalkójafnvægi, til dæmis vegna aukagjafar kalks og D-vítamíns á meðgöngu, fóðurs sem inniheldur ekki nægilegt kalk eða þar sem hlutfall kalks og fosfórs er óhagstætt. Einnig getur mikið kalktap við hámarks mjólkurframleiðslu ýtt undir ástandið.

Meðhöndlun: Krefst tafarlausrar bráðameðhöndlunar með náinni vöktun, þar á meðal hjartalínuriti og líkamshita tíkar. Nauðsynlegt er að aðskilja móður frá hvolpunum í að minnsta kosti 24–48 klukkustundir, og í sumum tilvikum lengur eftir klínísku mati.


Fóðurráð:

Frá fyrsta degi lóðarís að 42. degi meðgöngu: Royal Canin HT42D, fóður sérstaklega hannað fyrir fyrstu vikurnar þar sem hugað er að næringarþörfum tíkarinnar með auðmeltanlegri samsetningu næringarefna, aðlöguðu orkumagni miðað við þarfir tíkar á meðgöngu, aukið magn ákveðinna næringarefna (m.a. fólinsýru, beta-karotín, EPA+DHA fitusýrur).


Frá 42. degi meðgöngu og yfir tímabil mjólkurgjafar: Ef aðeins er um einn hvolp að ræða mælum við með Royal Canin Puppy (Mini–Medium–Maxi). Ef gotið er stærra er hins vegar ráðlagt að velja Royal Canin Starter (Mini–Medium–Maxi). Rétt fóðurval styður við aukna orkuþörf tíkarinnar bæði undir lok meðgöngu og á mjólkurgjafartímabilinu.


HÉR má lesa nánar um rannsóknir um áhættuþætti í gotum og umönnun hvolpa.



Fyrsta fæða hvolpsins

Fyrsta fæða hvolpsins er, þegar allt gengur eðlilega, móðurmjólkin. Fyrstu klukkustundirnar eftir fæðingu framleiðir tíkin svokallaða broddmjólk (colostrum), sem er próteinrík og inniheldur mikilvæg mótefni sem berast til hvolpanna. Hún veitir einnig aukna orku sem er nauðsynleg á fyrstu dögum lífsins.

Hæfni hvolpa til að taka upp mótefni úr broddmjólk er mest strax eftir fæðingu en minnkar hratt á fyrsta sólarhringnum. Því er afar mikilvægt að tryggja að hvolpar fái broddmjólk eins fljótt og auðið er. Ef tíkin getur ekki sinnt því sjálf, af einhverjum ástæðum, má styðjast við broddmjólkur eins og Puppy Protech sem inniheldur einnig mótefni gegn e.coli og parvovírus.



Hvolpamjólk 

Babydog milk: 

  • Þurrmjólk sem hentar sem mjólkuruppbót fyrir hvolpa frá fæðingu.

  • Má einnig nota sem stuðning fyrir móður þegar þörf er á aukinni orku.

Puppy protech:

  • Þurrmjólk með broddi (colostrum) ætluð nýburum.

  • Sérstaklega gagnleg þegar tíkur mjólka ekki nægilega, við keisaraskurð, í mjög stórum gotum eða þegar hvolpar þurfa aukinn stuðning við ónæmiskerfið.

Um þriggja vikna aldur eru hvolparnir tilbúnir til þess að prófa sig áfram í fastri fæðu, mælt er þá með því að bleyta hvolpafóður upp annaðhvort með vatni eða hvolpamjólk eftir gotstærð og hversu vel hvolparnir þroskast.

Labrador hvolpar að hvíla sig

Hvolpafóður

Ráðlagt er að hefja fóðrun með Royal Canin Starter (Mini–Medium–Maxi) þegar hvolpar eru um það bil 3-4 vikna gamlir og halda áfram fram að 8 vikna aldri. Þetta tímabil markar upphaf frávenju (weaning), þegar hvolparnir fara smám saman að treysta minna á móðurmjólkina og meira á fasta fæðu.

Starter-fóðrið er sérstaklega hannað til að styðja við þessa viðkvæmu breytingu. Fóðrið mýkist auðveldlega þegar það eru lagt í bleyti með volgu vatni eða hvolpamjólk, sem gerir hvolpunum auðveldara að taka fyrstu skrefin í átt að fastri fæðu. Með því að bleyta fóðrið myndast mjúk áferð sem líkist graut sem hentar vel óþroskuðu meltingarkerfi ungra hvolpa.

Smám saman má síðan minnka vökvamagnið eftir því sem hvolparnir þroskast og verða færari í að borða þurrfóður. Markmiðið er að hvolparnir séu að fullu vanir fastri fæðu um 7–8 vikna aldur.

Fyrstu máltíðir hvolpsins

HVað þarf hvolpurinn lengi hvolpafóður?

Ráðlagt er að hvolpar séu á Starter-fóðri frá því að þeir byrja að borða fasta fæðu og fram að um 8 vikna aldri. Um það leyti eru þeir tilbúnir í næsta þroskastig og þá er mælt með að færa þá yfir á almennt hvolpafóður, Royal Canin Puppy, sem þeir ættu að fá út vaxtatímabilið sitt.

Það er mjög mikilvægt að færa hvolpa ekki of snemma yfir á fullorðinsfóður. Hvolpar eru á hröðu vaxtarskeiði þar sem þörf fyrir orku, prótein, steinefni og snefilefni er verulega meiri en hjá fullorðnum hundum. Hvolpafóður er sérstaklega samsett til að styðja við:

  • heilbrigðan beinvöxt og liðþroska

  • uppbyggingu vöðvamassa

  • þroska ónæmiskerfis

  • viðkvæma meltingu ungra hvolpa

Ef skipt er of snemma yfir á fullorðinsfóður er hætta á næringarskorti eða ójafnvægi sem getur haft áhrif á vöxt og þroska.

Vaxtartími hunda er mismunandi eftir stærð:

  • Smáhundar: fullvaxta um 10 mánaða

  • Miðlungs hundar: um 12 mánaða

  • Stórir hundar: um 15 mánaða

  • Risahundar: geta verið 18–24 mánuði að ná fullorðinsstærð

Jafnframt er mikilvægt að fylgjast vel með skammtastærðum. Orkuþörf hvolpa eykst jafnt og þétt fyrstu mánuðina og skammtar hækka yfirleitt fram að um 6 mánaða aldri. Eftir það fer orkuþörfin smám saman að jafnast og þá þarf oft að minnka skammtana til að forðast ofþyngd.

Reglulegt eftirlit með þyngd og aðlögun fóðurskammta eru lykilatriði til að tryggja heilbrigðan og jafnan vöxt hvolps.

Hvernig veit ég hvort tíkin mín sé hvolpafull

Ef grunur er að tíkin sé hvolpafull er mikilvægt að leita til dýralæknis til þess að staðfesta þungun og áætla uþb. meðgöngulengd ef ekki er ljóst hvort/hvenær tíkin hafi parast. 

Meðgöngutími hunda

Meðgöngutími er um 63 dagar +/- 2 dagar frá egglosi. Misjafnt er hversu oft ræktendur para og hversu nákvæm talningin er.

Hvolpafulla tíkin mín er lystarlítil

Tíkur, eins og konur, geta upplifað lystarleysi á meðgöngu. Bæði getur lystarleysið stafað af ógleði en þegar líður á meðgöngu einnig vegna plássleysis vegna hvolpa - þar spilar orkuríkari næring (minna magn af fóðri) stórt hlutverk. Ef tíkin er lystarlaus í nokkra daga er gott að ræða við dýralækninn þinn varðandi hvernig hægt sé að hjálpa henni.

THEODÓRA RÓBERTSDÓTTIR

Theodóra er dýrahjúkrunarfræðingur að mennt og er með Award of merit í næringu smádýra frá BSAVA. Ásamt því er áhugasviðið að fyrirbyggja vandamál og sjúkdóma gegnum umönnun. Theodóra starfar hjá Dýrheimum við ráðgjöf tengda heilsu og næringu í Heilsutékki Dýrheima auk þess að halda fyrirlestra, einkatíma fyrir sýningar og sýnendanámskeið. 

Fræðslugrein uppfærð 19.02.2026