mars 20, 2026 3 mínútur að lesa
Kettir verja stórum hluta dags í að snyrta sig og innbyrgða því töluvert magn af hárum. Tungur þeirra eru þaktar örsmáum krókum sem virka eins og bursti og draga laus hár niður í meltingarveginn. Flest hárin fara eðlilega út með hægðum en hluti þeirra getur safnast saman í maga og myndað svokallaða hárbolta. Þetta er náttúrulegt ferli og margir kettir kasta hárboltum upp annað slagið. Í sumum tilvikum geta hárboltar fest sig í meltingarveginum og valdið óþægindum eða jafnvel alvarlegum meltingartruflunum sem krefjast inngrips hjá dýralækni.
Minni vatnsdrykkja getur aukið líkurnar á því að hárboltar festist í meltingarvegi katta?
Hárboltamyndun er nokkuð algeng hjá köttum en eftirfarandi þættir geta aukið líkur á að hárboltar myndist:
Eðlilegt er að köttur kasti upp hárboltum 1-2 sinnum í mánuði en ákveðin einkenni geta bent til þess að hárbolti sé orðinn of stór eða fastur:
Síendurtekin uppköst án þess að neitt komi upp
Minnkuð matarlyst eða lystarleysi
Slappleiki og mikil þreyta
Hægðatregða eða niðurgangur
Verkir í kvið eða óþægindi við snertingu
Ef köttur sýnir eitthvað af þessum einkennum hafið samband við dýralækni!
➡ Einungis síðhærðir kettir fá hárbolta - Það er ekki rétt, allir kettir geta fengið hárbolta!
➡ Hárboltar skila sér alltaf í gegnum kerfið - Það er ekki rétt, hárboltar geta safnast fyrir og valdið stíflu í meltingarfærum.
➡ Kettir sem sleikja sig mikið eru bara hreinlátir - Það er ekki rétt, ofsnyrting getur verið merki um ofnæmi, húðvandamál, kvíða eða sársauka.
➡ Kattagrös eða kattamalt leysa hárboltavandann - Það er ekki rétt, kattagrös og kattamalt geta vissulega hjálpað sumum köttum að kasta upp hárum eða auðvelda hárum að fara niður meltingarveginn en þau hafa ekki sömu góðu virkni og koma aldrei í stað trefja í fóðri og reglulegrar feldburstunar.
Regluleg feldhirða þar sem allur feldurinn er burstaður með hárbursta er áhrifaríkasta leiðin til að draga úr hárboltamyndun. Það minnkar magn hárs sem fer niður í meltingarveginn. Síðhærðir kettir þurfa daglega burstun á meðan snögghærðir kettir þarfnast burstunar tvisvar til þrisvar sinnum í viku.
Kettir sem gjarnir eru á að mynda hárbolta þarfnast fóðurs sem inniheldur aukið magn trefja. Helstu hlutverk trefja í meltingarvegi er að breyta formi hægða, hafa áhrif á matarlyst og seddutilfinningu, auka þarmahreyfingar og þjóna sem orkugjafi fyrir góðgerla í smáþörmum í gegnum gerjun. Þetta hjálpar hárunum að blandast betur við hægðirnar og ferðast í gegnum meltingarveginn svo minni líkur séu að hár safnist saman í maga og myndi hárbolta.
Royal Canin Hairball er dæmi um slíkt fóður en það inniheldur auk trefja, góðgerlafæðu (FOS) og psyllium sem myndar gelkennda áferð í metlingarvegi en slíkt stuðlar að auknum þarmahreyfingum.
Næg vatnsinntaka bætir meltinguna og dregur úr líkum á að hár safnist saman í þörmum. Þar sem kettir drekka oft minna en æskilegt er getur verið gagnlegt að reyna að ýta undir aukna vatnsdrykkju með því að:
Staðsetja vatnsskál ekki of nálægt fóðurskál
Hafa fleiri vatnsskálar á heimilinu
Setja vatnsskálar á mismunandi staði
Prófa vatnsbrunn því sumir kettir kjósa frekar rennandi vatn
Gefa blautfóður reglulega
Að auka hlutfall blautfóðurs í fæðu tryggir að kötturinn fái meira vatn án þess að skerða næringarinntöku. Margir kettir eru jafnframt mjög hrifnir af blautfóðri sem gerir þetta ákjósanlega leið til að bæta bæði vökva- og fæðuupptöku á sama tíma.
Streita getur aukið sjálfsnyrtingu. Leikur, klifurtré, örvun og minnkað áreyti draga úr streitu og þar með minni streitukenndri sjálfsnyrtingu.
Bursta feld reglulega
Kattagras/kattamalt
Trefjaríkt fóður
Næg vatnsdrykkja
Minnka streitu
Við höfum nú loksins bætt við Hairball línuna og má því nú finna Hairball bæði í þurr- og blautfóðri!
Andrea er dýralæknir að mennt en hún stundaði nám við Háskólann í Kaupmannahöfn (Københavns Universitet) og hefur aukið við sig nám í bráðalækningum hjá ESAVS. Áhugasvið Andreu eru húðsjúkdómar, atferlisfræði og næringarfræði hunda og katta. Andrea starfar hjá Dýrheimum við ráðgjöf tengda næringu í Heilsutékki auk annarrar fræðslu.