Deildarsýning Schnauzerdeildar HRFÍ

apríl 07, 2025 1 mínútur að lesa

Síðastliðinn laugardag stóð Schnauzerdeild HRFÍ fyrir deildarsýningu í samstarfi við Royal Canin í sýningarrými Dýrheima. Fjöldi schnauzerhunda og eigenda tóku þátt með glæsilega hunda sína!

Svartwalds Galadriel goes to Stapakots
Sigurvegari sýningarinnar var Svartwalds Galadriel goes to Stapakots, miniature black schnauzer

Sýningin fór fram í sýningarsal Dýrheima og var góð stemning á svæðinu. Dómarinn Vidar Anderssen frá Noregi dæmdi hundana með tilliti til byggingar, hreyfingar og feldgerðar auk fleiri mikilvægra þátta fyrir áframhaldandi ræktun tegundanna. Kaffihús Dýrheima var opið og var streymt úr salnum og inn fyrir gesti þess. 


Þökkum við fyrir frábæra samveru og óskum þátttakendum til hamingju með fallegu hundana sína!

Pipar og salt schnauzer
Svart og silfur schnauzer
Hvítur schnauzer ræktunarhópur
Pipar og salt schnauzer