Föstudaginn 6. mars fór fram ráðstefna fyrir starfsfólk á dýralæknastofum um allt land. Ráðstefnan var haldin í Hörpu í fyrsta sinn og var einstaklega ánægjulegt að sjá salinn Björtuloft fullsetinn af fagfólki úr dýralæknastéttinni. Á ráðstefnunni hélt Prof. Alex German fyrirlestra um meltingarheilsu hunda og katta, með áherslu á brisbólgu og próteintap í meltingarvegi. Prof. Alex German er sérfræðingur í smádýralækningum, situr í Puppy & Kitten Expert Board hjá Royal Canin og er prófessor við University of Liverpool. Við þökkum honum kærlega fyrir að koma til Íslands og deila með okkur frábærum fræðsluerindum.
Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur hjá Dýrheimum hélt einnig fyrirlestur um mikilvægi næringar í stuðningi við meltingarkerfi hunda og katta. Hún fjallaði m.a. um hvernig næring myndar grunninn að góðri meltingarheilsu og hvernig lausnir frá Royal Canin geta bæði hjálpað til við meltingarvandamál og nýst í forvarnarskyni.
Theodóra Róbertsdóttir dýrahjúkrunarfræðingur og Prof. Alex German
Fjölmennt og fræðandi kvöld í hörpunni
Gestir nutu bæði fræðslu og samveru í skemmtilegu og fallegu umhverfi. Björtuloft var sérstaklega skreytt í litum Royal Canin og var frábær stemning þar sem þátttakendur gátu tengst, spjallað og deilt reynslu úr starfi.
Við viljum þakka öllum þeim sem mættu á ráðstefnuna kærlega fyrir komuna. Við vonum að fræðslan nýtist í daglegu starfi og að þátttakendur hafi átt góða og fróðlega stund með samstarfsfólki og kollegum.