Nýtt netnámskeið! Skyndihjálp hunda og katta

mars 06, 2026 1 mínútur að lesa

Við hjá Dýrheimum leggjum mikla áherslu á vellíðan allra hunda og katta. Til þess að tryggja að sem flestir eigendur verði sérfræðingar í sínu dýri höfum við búið til nýtt netnámskeið: Skyndihjálp hunda og katta!


Slysin gera ekki boð á undan sér og því er mikilvægt að læra hvernig best er að bregðast rétt og fljótt við þegar upp koma alvarleg atvik, áður en dýrið kemst til dýralæknis. Markmið námskeiðsins er að gefa öllum eigendum aukið öryggi, betri skilning og einfaldar og hagnýtar leiðir sem geta bjargað lífi dýrsins.


Netnámskeiðið samanstendur af 14 köflum sem fara yfir helstu neyðartilfelli hunda og katta.

Bókaðu skyndihjálp hunda og katta hér að neðan

Netnámskeið Dýrheima

Heilsutékk Dýrheima leggur áherslu á að gera hunda- og kattaeigendur sérfræðinga í eigin dýrum. Hér að neðan finnur þú fleiri áhugaverð námskeið.