Fuglainflúensa – upplýsingar og ráðleggingar fyrir hunda- og kattaeigendur
febrúar 04, 2026
2 mínútur að lesa
Ný tilfelli staðfest á höfuðborgarsvæðinu
Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum hefur nýverið staðfest smit af skæðri fuglainflúensu af gerðinni H5N1 í dauðum villtum fuglum. Fuglar með staðfest smit fundust annars vegar við Tjörnina í Reykjavík og hins vegar við tjörnina í Ögurhvarfi í Kópavogi. H5N1 hefur ekki greinst á Íslandi síðan í júlí 2023. Á árinu 2025 hefur hins vegar H5N5-afbrigðið greinst í stökum villtum fuglum víða um land, auk þess sem það hefur fundist í einstaka spendýrum, þar á meðal refum, minnkum og köttum.
Smit í fólki
Bæði H5N1 og H5N5 hafa í afar sjaldgæfum tilvikum greinst í mönnum. Slík smit hafa komið upp hjá einstaklingum sem hafa verið í miklu návígi við smituð dýr og/eða ekki gætt smitvarna. Flestir sem smitast veikjast lítið.
Hundar
Hundar geta smitast af H5N1, en engin tilfelli eru þekkt af smiti af gerðinni H5N5. Þau H5N1-smit sem hafa greinst í hundum erlendis hafa yfirleitt verið væg og hingað til ekki leitt til dauða.
Mynd úr safni
Kettir
Kettir geta smitast af báðum þessum afbrigðum fuglainflúensu. Smit hafa einnig greinst í stærri kattardýrum, svo sem tígrisdýrum og fjallaljónum. Ólíkt hundum geta kettir orðið mjög veikir af fuglainflúensu og dánartíðni í sýktum köttum getur verið allt að 70%.
Á Íslandi hafa árið 2025 greinst þrír kettir með H5NF og létust þeir allir. Ekki er fullkomlega ljóst hvernig kettir smitast, en líklegast er að smit berist við að éta sýktan fugl. Talið er ólíklegt að veiran smitist á milli katta.
Mynd úr safni
Einkenni og hvað skal gera
Ef dýrið þitt hefur komist í snertingu við eða mögulega étið sýkt dýr er mikilvægt að fylgjast vel með því. Helstu einkenni sem geta komið fram eru:
Lystarleysi og slappleiki
Stífleiki, skjálfti eða krampar
Hiti
Öndunareinkenni
Leita skal strax til dýralæknis ef slík einkenni koma fram. Mikilvægt er að hringja í dýralækni á undan sér svo hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir á dýralæknastofunni. Ef grunur er um smit er mikilvægt að hafa dýrið úti í bíl þar til samþykki er fyrir að koma inn með dýrið.
Tilkynna má í síma 530 4800 eða með því að hafa samband við héraðsdýralækni í viðkomandi umdæmi.
Utan opnunartíma skal hafa samband við sjálfstætt starfandi dýralækni á vakt.
Mikilvægt að hafa í huga
Kettir eru útsettari og viðkvæmari fyrir smiti
Ráðlagt er að halda köttum frá svæðum þar sem sýkt dýr hafa fundist
Mikilvægt er að gæta fyllsta hreinlætis sé grunur um smit í heimilisdýri eða fundnu villtu dýri
Skynsamlegt er að fyrirbyggja að hundar komist í fuglaskít og hræ til öryggis þó að smit séu óalgeng
Andrea Björk Hannesdóttir
Andrea er dýralæknir að mennt en hún stundaði nám við Kaupmannarhafnar háskólann (Københavns Universitet) og hefur aukið við sig nám í neyðarlækningum (Akut medicine) hjá ESAVS. Áhugasvið Andreu eru húðsjúkdómar, atferlisfræði og næringarfræði hunda og katta. Andrea starfar hjá Dýrheimum við ráðgjöf tengda næringu í Heilsutékki auk annarrar fræðslu.