Fyrirbyggjandi umönnun í forgang, aukin þjónusta til hunda- og kattaeigenda
febrúar 04, 2026
1 mínútur að lesa
Við hjá Dýrheimum erum afar stolt af því að geta boðið upp á enn meiri þjónustu í Heilsutékki og Fræðslusetri, þar sem áherslan er á forvarnir, næringu, fræðslu og daglega vellíðan hunda og katta. Markmiðið er að styðja eigendur í að skilja betur heilsu gæludýrsins og grípa inn í áður en vandamál verða til.
Við bjóðum tvo nýja sérfræðinga velkomna! Andrea, dýralæknir, sinnir ráðgjöf tengdri næringu, ofnæmi, meltingu og þyngd. Hún vinnur náið með eigendum að einstaklingsmiðuðum áætlunum og aðstoðar sérstaklega dýr með langvinn heilsuvandamál. Kristín, dýrahjúkrunarfræðingur, tekur á móti í hundum og köttum í stöðumat, klóaklippingu, eyrnahreinsun ásamt hvolpa og kettlingaráðgjöf. Þjónustan er alltaf á hraða dýrsins og með áherslu á jákvæða upplifun og vellíðan.
Fræðslusetrið eflist við komu Andreu og Kristínar en auk þeirra verður Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur og fræðslustjóri með yfirumsjón þess að eigendur og fagaðilar fái góðan aðgang að fræðslu um umönnun, næringu og heilsu hunda og katta.
Heilsutékk & Fræðslusetrið er fyrir alla sem vilja efla heilsu og vellíðan gæludýrsins með fræðslu, endingargóðum venjum og faglegri leiðsögn. Þjónusturnar má skoða hér fyrir neðan.