Laugardagsopnun á Kaffihúsi Dýrheima!

maí 19, 2026 2 mínútur að lesa

Þann 16. maí sl. var laugardagsopnun á Kaffihúsi Dýrheima! Viðburðurinn var afar vel sóttur og ríkti þar notaleg stemning þar sem gestir nutu samveru, fræðslu og afþreyingar.

Við þökkum gestum sem heimsóttu okkur á laugardaginn kærlega fyrir komuna!

Fyrirlestur um ofnæmi hjá hundum og köttum

Dagurinn hófst á fræðslu um ofnæmi hjá hundum og köttum. Andrea Björk Hannesdóttir dýralæknir, fór yfir helstu gerðir ofnæmis, algeng einkenni og hvernig best er að bregðast við slíkum vandamálum. Við vonum að gestir hafi fengið aukinn skilning á ofnæmi dýra, sem getur hjálpað þeim að bæta velferð dýra sinna. 

Fyrirlestur um ofnæmi hjá hundum og köttum
Andrea dýralæknir að kynna

Netnámskeið um ofnæmi hunda og katta


Fyrir þau sem komust ekki á fræðslu fyrirlesturinn, eða vilja kynna sér ofnæmi frekar, hafa Dýrheimar sett saman netnámskeið um ofnæmi hunda og katta. Markmið námskeiðsins er að veita eigendum trausta og aðgengilega fræðslu um helstu birtingarmyndir ofnæmis, útskýra greiningu og meðferð húðofnæmis og auka skilning eigenda.


Netnámskeiðið samanstendur af 8 köflum sem fara yfir helstu gerðir ofnæmis hjá hundum og köttum, hvernig á að þekkja algeng einkenni og hvernig á að bregðast við ef húðvandamál koma upp.


Rallý Hlýðni prufutími

Boðið var upp á prufutíma í Rallý hlýðni sem vakti mikla athygli. Kennslan var í höndum Andreu Bjarkar Hannesdóttur, Rallý hlýðni-dómara hjá HRFÍ. Mikill áhugi var meðal gesta og gafst þátttakendum kostur á að fara í gegnum brautina í rólegheitum með leiðsögn, sem stuðlaði að góðri þjálfun og jákvæðu andrúmslofti. Rallý hlýðni er skemmtileg og uppbyggileg þjálfun sem styrkir samband eigenda og hunda þeirra.

Prufutími í Rallý Hlýðni með Andreu Björk Hannesdóttir

Kaffihús og leiksvæði Dýrheima

Kaffihúsið og nýja leiksvæðið var opið gestum allan daginn. Þar gafst tækifæri til að njóta veitinga, umhverfisþjálfa dýrin og leyfa þeim að leika sér í öruggu og skemmtilegu umhverfi. Á kaffihúsinu mátti finna fjölbreytt úrval veitinga, þar á meðal var vinsæla samlokan ,,Frú Ingibjörg" og súkkulaðikaka Dýrheima.

Tveir hundar
Prufutími í Rallý Hlýðni
Cocker Spaniel hundur

Hlökkum til að bjóða upp á frekari fræðslu og aðstöðu sem styður við vellíðan dýra og eigenda þeirra.

Fleiri myndir frá viðburðinum

Gestir á kaffihúsi með hunda
Hundur með bolta
Prufutími í Rallý Hlýðni
Hundur á leiksvæði
Hundur á leiksvæði
Hundar á leiksvæði
Hundur í Dýrheimum
Hundur á kaffihúsi Dýrheima
Tveir hundar að hittast
Tveir hundar á kaffihúsi Dýrheima
hundar á leiksvæði Dýrheima