maí 22, 2026 4 mínútur að lesa
Gæludýraeign hér á landi hefur farið vaxandi á síðustu árum og er talið að um helmingur íslenskra heimila haldi nú eitt eða fleiri gæludýr, þar sem hundar og kettir eru langalgengust. Fyrir marga er það að fá sér gæludýr upphafið að nánu og gefandi sambandi en jafnframt ákvörðun sem kallar á undirbúning og ábyrgð til lengri tíma.
Að velja nýjan fjölskyldumeðlim getur reynst mörgum yfirþyrmandi. Um er að ræða stórt skref þar sem dýrið verður hluti af fjölskyldunni um árabil. Því skiptir máli að huga vel að því hvernig það muni falla inn í daglegt líf og aðstæður á heimilinu áður en ákvörðun er tekin.
Við slíkt val þarf að horfa til fjölbreyttra þátta. Til dæmis hvort hundur eða köttur henti betur fjölskylduháttum og hvernig húsnæði henti með tilliti til þarfa dýrsins. Þá skiptir máli að gera sér grein fyrir kostnaði sem fylgir gæludýrahaldi, svo sem dýralæknaheimsóknum, tryggingum og reglulegri umönnun. Tími er ekki síður lykilatriði. Fjölskyldan þarf að hafa svigrúm til að sinna daglegri umönnun og þjálfun, sérstaklega á fyrstu mánuðunum þegar dýrið er að aðlagast nýju heimili og læra inn á daglegar rútínur.
Algeng mistök sem hvolpaeigendur gera eru til dæmis að:
Vanmeta þann tíma og ábyrgð sem fylgir dýrahaldi
Hefja þjálfun of seint eða ómarkvisst
Velja dýr sem passar ekki við lífsstíl heimilisins
Slík atriði geta haft áhrif til framtíðar, enda mótast hegðun og venjur dýrsins að miklu leyti á fyrstu mánuðunum.
Rétt næring á uppvaxtarskeiði hvolpa og kettlinga skiptir sköpum. Á þessu tímabili er líkaminn í örum vexti og næringarþarfir eru því töluvert frábrugðnar þörfum fullorðinna dýra.
Ung dýr þurfa fóður sem er sérsniðið að uppvexti og mætir hærri orku- og próteinþörf. Slík næring styður við uppbyggingu vöðva, vefja og ónæmiskerfis og leggur grunn að heilbrigðum þroska ungviðisins út lífið. Jafnframt skiptir rétt samsetning steinefna miklu máli, sérstaklega jafnvægi kalks og fosfórs sem hefur bein áhrif á beinþroska. Þarfir geta þó verið mismunandi eftir stærð og tegund dýrsins, sem er mikilvægt að taka tillit til við val á fóðri.
Í vönduðu hvolpa- og kettlingafóðri má einnig finna næringarefni sem styðja við heila- og sjónþroska, svo sem DHA fitusýrur, auk andoxunarefna sem styrkja ónæmiskerfið á þessu viðkvæma skeiði.
Dýrheimar leggja áherslu á að eigendur fái leiðsögn við val á fóðri sem hentar hverju dýri fyrir sig, enda getur rétt næring á fyrstu mánuðunum haft langtímaáhrif á heilsu og lífsgæði. Þar er boðið upp á fóður frá Royal Canin en hvolpa- og kettlingafóðrið þaðan er ríkt af CELT andoxunarblöndu sem styrkir m.a. enn frekar ónæmiskerfið og styður við bætta mótefnasvörun við bólusetningum.
Fyrstu mánuðirnir með nýju gæludýri geta bæði verið spennandi og krefjandi. Margir eigendur finna fyrir óvissu þegar kemur að uppeldi, þjálfun og daglegri umönnun, sérstaklega þegar um fyrsta dýrið er að ræða.
Til þess að mæta þessari þörf hafa Dýrheimar þróað netnámskeið fyrir hunda- og kattaeigendur, unnin af dýrahjúkrunarfræðingum og dýralækni. Þar er lögð áhersla á að miðla hagnýtri þekkingu á skýran og aðgengilegan hátt. Námskeiðin eru alfarið á netinu, sem gerir eigendum kleift að fara yfir efnið hvenær sem hentar og á eigin hraða yfir 6 mánaða tímabil.
Meðal þess sem er í boði er námskeið fyrir hvolpaeigendur um fyrstu skrefin og uppeldi – að fá hvolp inn á heimili. Markmiðið er að styðja eigendur í að skapa öruggt og jákvætt upphaf í lífi nýs fjölskyldumeðlims.
Auk þess er í boði fjölbreytt fræðsla, meðal annars um skyndihjálp fyrir hunda og ketti, ofnæmi, klóaklippingu og gotfræðslu - frá pörun að afhendingu.
Markmið Heilsutékks Dýrheima er að gera hunda- og kattaeigendur að sérfæðingum í sínum dýrum. Forvörn er besta lækningin og miðar þjónustan að því að styðja við fyrirbyggjandi umönnun.
Sem hluti af þeirri nálgun er meðal annars boðið upp á stöðumat hjá Kristínu dýrahjúkrunarfræðingi þar sem farið er yfir helstu þætti uppvaxtar, dýr vigtað og eiganda veitt ráðgjöf um heilsu og vellíðan dýrsins sem nýtist í daglegu lífi. Auk þess er hægt að bóka fjölbreytta þjónustu hjá Andreu dýralækni, m.a. dýralæknaskoðun, eyrnaskoðun og ýmsa sérhæfða næringarráðgjöf, t.d. varðandi ofnæmi, meltingu og þyngd.
Markmiðið er að hjálpa eigendum að þekkja sín dýr betur, byggja upp öryggi í umönnun og fyrirbyggja áskoranir áður en þær koma upp.