ágúst 18, 2026 1 mínútur að lesa
Þann 15. ágúst sl. buðu Dýrheimar, í samstarfi við Royal Canin, talsmönnum sínum í skemmtilega tónleikaferð. Ferðinni var heitið á Selfoss þar sem Bryndís Ásmunds steig á svið í hlutverk Tinu Turner og flutti helstu smelli tónlistargoðsagnarinnar.
Kvöldið var afar líflegt, skemmtilegt og fullt af góðri stemningu. Við viljum þakka öllum þeim talsmönnum sem mættu kærlega fyrir samveruna og vonum að allir hafi notið kvöldsins í botn.
Royal Canin hefur frá upphafi stutt við talsmenn/ræktendur og lítum við á þá sem ómissandi hluta af okkar sterka teymi. Markmið okkar er að vera traustur samstarfsaðili sem veitir faglegan stuðning, fræðslu og lausnir sem auðvelda daglegt starf ræktenda.
Vilt þú koma í teymi Royal Canin talsmanna/ræktenda?
Með því að gerast hluti af Royal Canin teyminu færð þú m.a. aðgang að PRO pokum, sérfræðiþekkingu, sérsniðnum stuðningi og heildstæðum lausnum sem styðja við heilbrigða og ábyrga ræktun.
Þú getur sótt um að vera á ræktendasamningi Royal Canin hér.
Til að sækja um talsmannasamning þarf að senda póst á dyrheimar@dyrheimar.is og panta talsmannasamtal.